Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 24

Kirkjuritið - 01.04.1943, Side 24
134 Magnús Jónsson: Apríl. íslenzku kirkjunnar í lieild, þá hygg ég, að ekki verði af henni liaf-t það, að hún hafi verið heilladrýgst stofn- un, sem þjóð okkar hefir átt, og það svo, að ekkert ann- að kemst þar nálægt. Hún hefir veitt menntun og lyft- ing inn í þjóðlífið, holl ráð og' stvrk í raunum. Hún hefir að sjálfsögðu ekki frekar en annað, sem menn fara höndum um, getað komizt lijá því, að byrla þjóðinni eilthvað, sem liefir verið miður hollt, en sjaldan mun hún hafa gjört það viljandi. Og blys kristindómsins Iiefir hún borið kynslóð eftir kynslóð í öllum hreggviðrum þjóðlífsins. Hún hefir varðveitt fjársjóðinn dýrmæta, sem lienni var falinn, og miðlað mönnum af honum eftir því, sem liver kvn- slóð hefir verið fær að gefa og þiggja. A einhverjum mestu fátæktarárum þjóðarinnar, þegar að því sýndist draga, að hún væri að færast nær og nær hordauðanum, lyfti hún þessum fjársjóði livað hæst í sálmum Hall- gríms og fleiri ágætra skáldlderka, prédikunum Yída- iins og hirðistarfi séra Jóns Steingrimssonar. Og hin nývaknaða þjóð söng eins og fuglarnir syngja á nývökn- uðum vordegi, hina dýrlegu sálma, sem nú eru í sálma- bók vorri, einhverjum mesta dýrgrip, sem kirkja voi á nú. Það væri bæði gaman og lærdómsríkt, að gela sýnt þeim, sem halda að kirkja vor hafi lítið lagt til málanna um uppeldi íslenzku þjóðarinnar — ef svo einfaldir menn eru þá til svo að mark sé á takandi — það væri lær- dómsríkt að geta sýnt þeim þjóðina eins og.hún væri á sig komin, ef á brott væri numið allt, sem kirkjan hefir gefið henni. Við eigum eitt nærtækt dæmi, ef litið er til þjóðernis okkar, um það, hvílíkur brimbrjótur kirkjan getur verið þjóðerninu. En það er kirkja Vestur-lslendinga.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.