Kirkjuritið - 01.04.1943, Blaðsíða 33

Kirkjuritið - 01.04.1943, Blaðsíða 33
Kirkjuritið. Sigur krossins. 143 ræÖa. Rekur hann sögu Jesú frá upphafi til enda og skýrir frá sínu sjónarmiði. Þó að kristnum mönnum komi í höfuðatriðum sam- an um gildi friðþægingar Jesú og fórnardauða fyrir mannkynið, þrátt fvrir mismunandi skýringar og skoð- anir hinna ýmsu kirkjudeilda og guðfræðistefna, þá er þó ein spurning, sem jafnan hefir orðið örðug til sam- komulags, og hún er þessi: Hvenær varð Jesú fyllilega meðvitandi Messíasarköllunar sinnar? í riti Anselms erkihiskups af Kantaraborg: Hversvegna gerðist Guð niaður?, sem um allar miðaldir var undirstöðulærdóm- ur kirkjunnar um friðþæginguna, og er í raun og veru ennþá, virðist ekki annað sjáanlegt en að gengið sé úl frá því, að þegar Jesús í hinmeskri fortilveru sinni tekst á hendur að fæðast hingað til jarðar, til fórnar og frið- þægingar fyrir syndir mannanna, hafi liann verið fulls vitandi þess, hver örlög biðu lians og hvers sú köllun krafðist. Hann hafi því frá fyrstu bernsku lifað með þá köllun sina fyrir augum. Nú er það alkunna, að þessi skilningur er hvergi nærri viðurkenndur af öllum guð- fræðingum. Sumir halda því fram, og þeir allmargir, að skírn Jóhannesar við' Jórdansá hafi fyrst vakið Mess- tasarvitund lians. Enn eru aðrir þeirrar skoðunar, að það hafi ek^i verið fvr en undir lolc starfstíma hans i Gyðingalandi, að liann hafi gert sér Ijóst, hvert stefndi fyrir honum, að krossinn og fórnardauðinn yrði að verða hinn óhjákvæmilegi endir jarðlífs hans, ef fæðing hans, líf og starf ætti að ná tilgangi sínum. Jafnvel þó engin þessara skoðan dragi fortilveru Jesú i efa, og ^ylgi í því efni skoðunum postulanna Páls og Jóhann- esar, þá ber það á milli, að tiltölulega flestir álíta, að fæðing guðdómlegrar veru í mannheima hljóti að or- saka henni gleymsku á fyrri tilveru sinni. Um meðvil- und Messíasarköllunarinnar, sem bvggð er á endurminn-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.