Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 4

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 4
122 Á. G.: Fri'ður. Apríl-Maí. þá ekki umflúin né vaxandi hætta á því, að mannkynið tortími sjálfu sér. Orðið friður er dregið af sömu rót sem sögnin frjá: að elska. í því felst djúp lífsspeki. Það er aðeins eitt, ssm tryggir friðinn, kærleikurinn. Mannfélagshöllin kann að verða „sópuð og prýdd“ menningargljáa, en þrjóti kær- leikann, gsta árar stríðsins brotizt inn, þegar minnst var- ir, og sezt að völdum. Kærleiksskorturinn býður bölvun- inni heim fyr eða síðar. Þessvegna er það fyrst og síðast, síðast og fyrst kær- leiksboðskapur Krists, ssm nú verður að flytja öllum þjóð- um heims í orði og verki og á því máli, sem hvert manns- barn skilur. Honum verður að halda á Iofti jafnt í lífi þjóða og einstaklinga. Að sama skapi ssm hann nær tök- um á hjörtunum, er friðurinn tryggður. Og vér íslendingar, sem undanfarin ár höfum eytt beztu kröftum vorum í fánýtar deilur, verðum nú að fagna friðinum með einbeittu starfi að einu marki. Verkefnin eru svo mikil framundan, að samstillt átök allrar þjóðarinnar þarf til að inna þau af höndum. Sund- urlyndið verður að hverfa eins og næturhrím fyrir upp- rennandi sól. Þjóðarsálin verður að svifta af sér tötrum sérhyggju og flokkadrátta og vaxa til sannarlegs frels- is. Fáni vor blaktir, sigurfáni, sem boðar himininn, hreinleikann og kærleikann. Boðskapur hans á að stjórna hug og hjarta og hendi hvers íslendings. Undir því merki munum vér sigra og ná fullum friði. Ásmundur Guðmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.