Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Side 5

Kirkjuritið - 01.04.1945, Side 5
KirkjuritiÖ Friðarbæn. Ára og alda faðir, alheinfs lífið sanna, einn, sem öllu stýrir, athvarf breyskra manna. Sendu sjóli hæða sátt í hjörtu lýða. láttu yl þíns anda allan klaka þíða. Gæddu af gæzku þinni Guð í hjörtum manna. Láttu kærleikskraftinn kærleiksverkin sanna. Láttu mátt og mildi mýkja haturs böndin. Láttu björg og blessun breiðast yfir löndin. Láttu Kristur kæri kraftinn orða þinna heims um álfur allar aldrei framar linna. Láttu trúartraustið treysta vinarböndin. Láttu frið og frelsi tærast yfir löndin. Eyddu heift og hatri, heftu styrjöld alla. Láttu um veröld víða vopnin niður falla. Láttu sátt og samúð sigra heljarvöndinn. Láttu bræðrabandið brúa saman löndin. I>ú, sem varst og verður vegaljósið bjarta, gefðu geisla þína gegnum myrkrið svarta. Villtum vegfaranda veginn rétta greiddu. Út úr alda villu alla um síðir leiddu. Gef oss kraft þinn, Kristur, krossins byrði léttu, krafí í kvöl og dauða, kærleikshönd oss réttu. Láttu ljós þíns anda lýsa veröldinni, græddu gömlu sárin, Guð, af miskunn þinni. Jón Eiríksson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.