Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 14

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 14
132 Benjamin Kristjánsson: Apríl-Maí. skammt frá landi, þar sem takmarkalaust djúp er fvrir utan. Yér berum í liuga vorum ósjálfráða ang- ist gagnvart djúpinu ókunna. Þessi veröld með liennar daglegu venjum er jörðin, sem vér viljum lielzt hafa undir fótum. Vér játum að vísu trú vora á Guð, föður almáttugan — en liver var máttur þeirrar trúar í lifi voru? Og á Jesúm Krist, en trúum þó meira á Mammon og aðra jarðneska falsguði. Og á Heilagan anda og kristna kirkju — en látum þó aðrar samkomur sitja í fyrirrúmi og annan anda stjórna athöfnum vorum. Þetta eru grynningarnar, þar sem meistarinn hitti lærisvein sinn kafinn veraldarhyggju. Það er hálfvelgjan, hinn þröiigi hringur vanans, sljóleiki hversdagslífsins, sem aldrei undrast og spyr og aldrei gerir manninn vitandi köll- unar sinnar. Þannig er maðurinn, meðan liann leikur sér í flæðar- máli útsævanna, á takmörkum þessarar veraldar og ann- arar, og þorir hvergi frá ströndinni. En einhvern daginn kemur hinn guðdómlegi máttur til vor og knýr oss út á djúpið. Það getur verið, að J)að sé gleðin, sem lirærir oss til dýpri vitundar. En miklu oftar er J>að sorgin, sem svipt- ir af oss mókinu og öllu hinu falska öryggi deyfðarinnar og var])ar oss út i straumiðuna. Öfl, sem vér þekkjum ekki, kraftar, sem vér ráðum á engan liátt við, grípa inn í líf vort og hrífa oss út á það djúp, þar sem stórstreymt er, J>ar sem hvergi sér til lands og allir hlekkir brotna. Allt i einu verðum vér J>ess vör, hversu vér þekkjum til- veruna lilið — mennina og oss sjálf. „Herra, vér höfum setið í alla nótt og ekki orðið var- ir“, mælti Pétur. Hversu oft er sálarlif vort þannig, eins og nóttin, dimm og þögul. Vér’ vitum ekki, hvað í djúpinu hýr. Langar nætur og daprir dagar hafa liðið, og vér höfum lagt út net vor i leit að lifshamingjunni. Vér höfum ofið

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.