Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 23

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 23
Kirkjuritið í samkunduhúsum Jerúsalem. 141 sem guðsþjónusta kristinna manna mótaðist af siðar: Fyrst trúarjátning, ])á bænagjörð, þá lestur lögmálsins, ])á lestur úr spámannaritunum og prédikun, blessun yfir söfnuðinn að lokum. Sjálfur prédikaði Jesús oft. Þvi er lýsl svo á einum stað: „Hann stóð upp til að lesa. Og honum var fengin bók Jesaja spámanns; og hann fletli sundur bókinni og fann staðinn, þar sem ritað var: Andi Drottins er j’fir mér, því að hann liefir smurt mig, til að flytja fátækum gleðilegan hoðskap; liann liefir sent mig til að hoða bandingjum lausn og blindum, að þeir skuli uflur fá sýn, til að láta þjóða lausa, til að kunngjöra hið þóknanlega ár Drottins. Og hann vafði saman hókina, fékk hana þjóninum og settist niður, og allir í sam- kunduhúsinu störðu á hann. En liann tók að tala til þeirra: „í dag hefir ræzl þessi ritningargrein, sem þér nú hafið heyrt. Og allir lofuðu liann og undruðust þau vndislegu orð, sem framgengu af munni hans“. Þetta var hans þjóð, enda þótt hún liefði hafnað lion- Uni- Og nú rofaði loks fyrir skilningi á þvi eftir allar þessar aldir, að hann liefði verið spámaður, máttugur 1 verki og orði fyrir Guði og öllum lýðnum. Að síðustu niundi sú stund renna upp, að hún heygði kné fyrir hon- 11111 sem Messíasi og syni Guðs — afhöggna limið yrði V|ð stofninn sinn grætt, eins og Páll postuli komst að °*'ði j spádómi sinum. Enn voru Gyðingar dreifð, vesalings landflótta ])jóð, seni átti hvergi liöfði sínu að að halla, ofsótt, lirakin, smáð. Og ég virði betur fyrir mér þetta litla brot henn- ar> sem situr umhverfis mig. Þar á hver maður sina sögu, og liafa þung örlög vglt marga brún. Sumir gjóta augum flóttalega. Það er ems °S þeim sé hvergi fritt. Aðrir hafa hrugðið hulu vfir svip sinn. Þar verður ekkert lesið fremur en í lokaðri l,nk. Svipur annára her vitni uni þrjózku og hugleysi í senn. Enn aðrir eru þrevtulegir og daprir. Yfir andlits- drætti sumra hreiðist draumhlær, þeir hirða ekki um

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.