Kirkjuritið - 01.04.1945, Side 31
Kirkjuritið Þjóð og kirkja. 149
píslarvættisdauða, alveg eins og á dögum frumkristn-
innar.
Er þetta ekki vottur þess, að kirkjunni sé ætlað mik-
ið hlutverk að vinna af höfundi lifsins, og' að Guð sjálf-
ur stendur á hak við það starf, sem unnið er af trú-
mennsku í hans nafni til blessunar mannkyninu.
Guð getur ekki beðið ósigur. Vér mennirnir getum
beðið ósigur, og starf vort getur farið í mola, af ýmsum
ástæðum, en Guðs vilji blýtur að sigra að lokum, bvern-
ig sem mennirnir liamast gegn vilja hans og hversu
svart sem oss finnst fyrir dyrum.
Þetta er óbilandi sannfæring bvers kristins manns
°g þessi sannfæring gefur styrk í starfi, þrek í baráttu
°g innilega gleði í þjónustunni fyrir málefni Drottins.
Ég á enga ósk lieitari íslenzku þjóðinni til lianda, á
þessum mikilsverðu tímamótum í sögu hennar, en að
starf kirkju landsins megi eflast og blómgast í anda Jesú
Krists og hafa aukin áhrif í þjóðlífinu, þá veit ég, að
þær framfarir, sem verða munu á ókomnum árum, í
menningar og athafnalífi þjóðarinnar, munu flytja
lienni blessun. En vér verðum að gera oss það ljóst, að
kirkjan er öll þjóðin, ekki aðeins prestarnir einir, beld-
Ur hver og einn einstaklingur í söfnuðum landsins, og
nialefni hennar varðar líf og tilveru hvers einasta
Hianns. Kirkjan heitir því á stuðning allra góðra manna.
Hún heitir á stuðning áhugasamra ungra manna að
starfa fyrir liugsjónir kristindómsins. Og getur nokkur
ungur maður varið betur kröftum sínum og lífi en með
l)ví starfa af einlægni og trúmennsku fyrir bugsjónir
Jesú Krists ?
Ungu menn, sem lieyrið mál mitt i dag, lmgsið um
- l>etta i alvöru á kvrlátum stundum í lífi yðar.
>,En leitið fyrst ríkis Guðs og réttlætis, þá mun allt
þetta veitasl yður að auki“, sagði Jesús.
Því meir sem lífsreynsla vor vex, því betur skiljum
'ér sannleika þessara orða. Trúmennskan við Guð er