Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 32

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 32
150 Óskar J. Þorláksson: Apríl-Maí. undirstaða allrar sannrar gæfu og blessunar. Lífsreynsla liinna ólíkustu manna hefir staðfest þetta. Allur lieimurinn kannast við forsætisráðherra Breta, W. Churchill og dáist að leiðtogahæfileikum lians. Fyrir ekki alllöngu, er hann flutti ræðu á fundi leiðtoga at- vinnurekenda og verkamanna í Bretlandi, fórúst honum þannig orð: „Mér finnst stundum, að æðri öfl skerist í leikinn með okkur. Mér er þetta fullkomin alvara. Ég hefi það stundum á tilfinningunni, að leiðandi hönd sé að verki með okkur. Mér finnst stundum, að við eigum okkur æðri verndara, af því að við eigum mikilfenglegan mál- stað, og að við munum lialda áfram að eiga þennan verndara, meðan við þjónum málstaðnum af trú- mennsku“. Er það ekki þessi sannfæring um vernd Guðs og styrk, sem alltaf hefir gefið mönnunum þrek til þess að fram- kvæma það, sem öðrum hefir fundizt vonlaust eða ó- mögulegt. Kristin lífsskoðun vill efla hjartsýni og framþróun menningarinnar á grundvelli trúar, réttlætis og bræðra- lags. Það er hverri þjóð blessun, að trúarlíf hennar sé áhrifamikið til sóknar og varnar í baráttu lífsins, til dáð- ríkra athafna og drengilegrar þjónustu. Frá Bretlandi var nýlega sögð eftirfarandi smásaga: „Mikil loftárás var gerð þar á borg eina, svo að margir særðust eða biðu bana. Allir, sem eitthvað gátu, voru önnum kafnir við björgunarstarfið. Lítill drengur bar á bakinu særðan bróður sinn, er var miklu stærri en liann sjálfur. Einhver, sem mætti þeim, sagði við litla drenginn: „Þú liefir þunga byrði að bera, litli drengur“. Drengurinn svaraði strax, og varð svar lians landfleygt í Bretlandi: „Það er ekki byrði, það er bróðir minn“. Þetta hugarfar þurfum vér að eignast í þjóðlífi voru, því að þegar þjónustan er ekki lengur byrði, heldur kær- leiksfórn, þá er framtíðinni borgið.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.