Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 45

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 45
Kirkju ritiö María Elísabel Jónsdóttir. 1(53 ungu fólki á Eyrarbakka að leika á bljó'ðfæri, og béll því áfram, meðan hún átli þar lieima. 17. september 1893 giftist hún prestaskólastúdent Pétri Helga Hjálmarssyni, sem átti þá eftir tæplega ár við nám. Faðir Jiennar var þá látinn, og fluttist móðir henn- ar, systir og fósturdóttir prestshjónanna, Karen ísaks- dóttir, með henni til Reykjavíkur. Bjuggu þau þar næsta vetur, og var engan áhyggjusvip að sjá á fjölskyldunni, l>ótt ekki væri úr miklu að spila, livað fjármuni snerti. Var þar oft glatt á kvöldin, þegar húsmóðirin studdi á strengi eða nótur og söng'. Þegar maður hennar hafði lokið umbættisprófi, um miðjan ágústmánuð 1894, fór fjölskyldan öll norður til Húsavíkur, þar sem þau hjónin stunduðu kennslu næsta vetur. 25. ágúst 1895 var Pétur Helgi vígður til Helga- staðaprestakalls í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi, og Huttist með fólk sitt þangað um liaustið. Ekki var bú- stofninn mikill, sem þau byrjuðu með, en þau voru á- hugasöm og litu vonglöð fram á veginn. — Seinni liluta n*sta vetrar brugðu þau sér í skemmtiferð upp í Mý- vatnssveit, til þess að heimsækja foreldra bans, en á ■neðan þau voru þar, brann bærinn á Helgastöðum að 'nestu leyti, og þar með nálega allir innanstokksmunir þeirra. Ekki var byrjunin álitleg, en þó bafa þau, ef til vill, *U|ggað sig við orðtækið gamla, að betri væri húsbruni a ^yi'sta búskaparári en hvalreki. — Þá tjáði lítt að hrópa •'l stjórnarvaldanna og biðja um steinhús á prestssetrið, presturinn varð sjálfur að brjótast í því að útvega sér lán og byggingarefni og reyna að koma einhverju skýli llPP> yfir höfuð sér. Næsta sumar var reist timburhús á brunarústunum, og þegar ég kom til þeirra um þær mundir, var spaugað e,ns °g áður, og' enn leikið á liljóðfæri og sungið. Þá komu harðinddaár, og skuldir hvíldu þungt á herðum þeirra, en eftir að þau fluttu að Grenjaðarstað árið 1907,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.