Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Side 59

Kirkjuritið - 01.04.1945, Side 59
Kirkjuritið Nýr sáttmáli. 177 og þeir skulu vera mín þjóð .... eg mun fyrirgefa mis- gjörð þeirra og ekki fraiiiar minnast syndar þeirra“. Skyldi þetta vera svarið við spurningum dagsins í dag, um framtíð friðarins á jörðinni? Nýr sáttmáli milli Guðs og mannanna, sem ávallt áður liafa brugðizt skyld- um sinum og rofið sáttmála sína við hann? Skyldi þeir dagar vera komnir, er gerður verður nýr sáttmáli, er reynist traustari en þeir, sem áður voru gerðir, sáttmáli, sem ekki verður rofinn eins og þeir, sáttmáli, sem trygg- ir varanlegan frið og farsæld, sáttmáli Guðs við þjóð- irnar á jörðinni og forustumenn þeirra? Hvilíkur dag'- ur væri þá þessi 8. mai 1945, ef hann væri fagnaðarboð- inn, er slik gleðitíðindi flytur, vorboði gæfunnar öllum þjóðum til handa. II. Jeremía var trúarsterkur, skapríkur og hjartaheitur spáinaður. Oft varð hann, er hann skyldi tala af Guðs hálfu, að ákæra, aðvara og jafnvel spá óheillum þeim niönnum og þjóðum, er af blindni, þrjózku og þverúð lótu orðin frá Guði sem vind um eyrun jóta. En 31. kaflinn i riti spámannsins sýnir það glöggt, að liann vildi iúslega hoða þjóð sinni betri daga, hoða henni nýtt líf °8 nýja hamingju, þegar hún hefði áttað sig. Þótt hún hefði áður rofið sáttmálann við Guð sinn, var hún þó eiln Þjóðin hans, sem hann vildi vernda og blessa og hjarga frá glötun. Hann vill reisa liana við. Þess vegna vlU hann gjöra við liana nýjan sáttmála, ef hún vill hneigja hug sinn til hans, þegar ógnirnar eru liðnar 'Ja. Og sá sáttmáli verður að vera með þeim liætti, að °gniál Ciuðs skal verða ritað í hjörtu mannanna; þeir ^kiilu vilja það, sem Guð vill, þekkja liann allir og kann- ast við liann. Og þá skal öll misgjörð þeirra verða fyrir- geí'in, syndar þeirra eigi framar minnzt. Þá skal eigi ngnr Guðs réttláta refsing hvíla þungt á þeim, heldur

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.