Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 61

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 61
Kirkjuritið Nýr sáttmáli. 179 III. Yeröld vor er nú sundurflakandi í sárum, er lengi verða að gróa. Svndagjöld hins liðna yerða eigi greidd á einu augabragði; harmasár þess horfna munu lengi sjást. Miljónir og aftur miljónir manna sjá nú í rústum það, er þeir hugðu á traustum grunni reist. Innan um hrundar rústir, innan um grafir dauðra, reika nú fálm- andi og leitandi sálir, er þrá ljós yfir lífsveginn dimma og kraft til að komast áfram á grýttri braut. Hvers þarfnast þeir þá fremur til veganestis og farareyris út á brautir örðugrar l'ramtíðar en vissunnar um það, að góður Guð vill gjöra við þá nýjan sáttmála, rita lög- mál sitt í lijörtu þeirra, og jafnframt fyrirgefa þeim gamlar misgjörðir, ef þeir vilja nú hneigja hug sinn til Iians, ])egar ógnirnar eru liðnar hjá. Boðskapur kristinnar trúar er þessi í dag til allra manna og þjóða: Guð vill gjöra við þig nýjan sáttmála, svo að líf þitt verði nýtt. Hann vill rita lögmál sitt í hjartað, gagntaka svo hugarfar þitt, hjartalag og vilja- Hf, að þú viljir það, sem hann vill. Og þá er misgjörðin fyrirgefin, syndar liðins tíma eigi minnzt framar. Hið gamla skal hverfa, allt verða nýtt! Er það ekki einmitt þetta, sem allt mannkyn þarfnast nú, að létt sé af allri •amandi byrði syndar og sektar, svo að gráturinn vegna lúns liðna græti eigi komandi tima? Það er sigurmáttur syndafyrirgefningarinnar, sem gjörir hvern lærisvein nýjan og ungan í Drottni, þróttmikinn, karhnannlegan, fvjálsan og færan til að takast á hendur ný verkefni á nýrri mannlífsöld, með huga hins mikla þjóns nýja sátt- málans, er sagði: „Ég gleymi þvi, sem að baki er, en seil- ist eftir því, sem fyrir framan er“. IV. Kirkja Krists um víða veröld er málsvari nýja sátt- málans. Kirkjur standa opnar. Og i þeim er flutt það (n'ð, sem oft reynist mönnunum, þeim er við þvi taka,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.