Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 70

Kirkjuritið - 01.04.1945, Page 70
188 Fréttir. April-Mai. Endurprentun Biblíunnar. Miki'ö vildi ég óska, að Hið íslcnzka .Biblíufélag gœti iáti'ð prenta Biblíuna í Reykjavík. Hún nuindi þá vera betur úr garði gerS en hún er nú, — þvi íslenzkar bækur eru prýðilega prent- aðar. Nú cr svo niikill .Biblíuskortur í mörgum löndum, að lítil líkindi eru til jjess, að Bibliufélagið brezka geti látið prenta íslenzkar Biblíur að nokkru ráði — fyrstu árin eftir striðið. Það væri skemmtilegt, ef íslenzka Biblíufélagið gæti gefið út íslenzku Bibliuna. — Ég lieyri, að mikil eftirspurn sé eftir henni, svo að útgáfan ætti að geta borgað sig. •—- Það ættu að vera sam- skot i kirkjunni einu sipni á ári lil þess að styðja Bibliufélagið, — ef það gæfi út Biblíuna, er ég alveg viss um, að fólk færi að senda því gjafir og ánafna því gjafir, eins og margir gera hér á landi, hvað brezka Biblíufélaginu viðvíkur. Úr bréfi frú Ingibjörgu Ólafsson. Fréttir. Höfðingleg gjöf til Stórólfshvolskirkju. Á páskadaginn færði sóknarpresturinn, séra Erlendur Þórð- arson, sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju liöfðingalega gjöf frá Guðjóni Ó. Guðjónssyni, bókaútgefanda í Reykjavík. Hafði liann greitt að fullu skuld kirkjunnar við kirkjusjóð, — sendi nefnd- inni kvittuð skuldabréfin, — og auk þess á fjórða þúsund krón- ur í peningum fyrir nýju orgeli. Alls nam þessi rausnarlega' gjöf kr. 5000.00. Kirkjustaðurinn, Stórólfshvoll, er að mörgu leyti miðstöð Rangárvallasýslu, þar er læknissetur, bústaður sýslumanns og aðal póst og símstöð sýslunnar. Þar er og skóli og samkomuhús og aðal verzlunarstaður Kaupfélags Hallgeirseyjar, og nokkur nýbyggð umhverfis Hvolsvelli. En enn er söfnuðurinn fámenn- ur, um 100 manns gjaldskyldir. Fyrir nokkrum árum varð að rífa gömlu kirkjuna á Stórólfshvoli vegna hrörnunar, og reisti þá þessi fámenni söfnuður mjög snotra og vaiulaða kirkju. Hefir nú vel ræzt úr með fjárhag hennar. Guðjón Ó. Guðjónsson er fæddur í Stórólfshvolssókn, að Mos- livoli, en fluttist á unga aldri til Reykjavíkur. Fieiri Iiafa undanfarið gefið kirkju þessari myndarlegar gjafir, þar á meðal einn af efnaminni bændum sóknarinnar, Gunnar Guðmundsson á Moslivoli, er gaf kirkjunni á s.l. liausti kr. 500.00 til minningar um nýlátna konu sína, Guðrúnu Eiríksdóttur.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.