Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 48

Kirkjuritið - 01.04.1946, Page 48
Apríl-Maí. » Oútmáanleg spor. „Líl okkar er ekki aðeins ljósgeisli, sem hverfur í myrkrið og deyr; ekki aðeins bylg'ja, sem hverfur í djúp hafsins; ekki aðeins vindhviða, sem þýtur um og hverf- lir í fjarskann. Nei, líf okkar er vegferð um leiðir tím- ans, sem lætur þar eftir sig spor, sem sýnileg verða lengur en okkur varir“. Ég las einhvers staðar orð lík þessum, og þau snertu mig dýpra en margt annað, sem ég liefi lesið. Þótt framundan liggi það i leyni fyrir öllum, að verða máðir úr tölu hinna lifandi liér á jörðunni, hverfa þeir þó ekki þaðan með öllu. Þótt líkamir þeirra hyljist í jörð eða djúpi hafsins, liafa þeir þó með lífi sínu mark- að spór, sem ekki verða máð út. Minningin um þá og líf þeirra lifir. Hún er táknræn þessi litla þjóðsaga: Adam er að dauða kominn. Hann kallar Set fyrir sig og segir við hann: „Farðu til kerúbsins, sem heldur vörð við lífsins Iré. Og þegar þú finnur hann, þá segðu honum, að æfi föður þíns sé senn lokið. Segðu ihonum, a)ð nú verði hann að veita mér miskunn Guðs“. Og Set átli að stefna i austur. Þá myndi hann firtna leiðina, sem lægi til Paradísar. „Og það mun ekki verða erfitt fyrir þig að finna leiðina“, hélt Adam áfram, „því í grasinu muntu greina visin spor. Það eru fótspo,r mín og móður þinnar“. Þannig segir hin stutta saga. Hún er til okkar kom- in frá löngu liðnum tímum, en þó mun hún vissulega geta orðið okkur umhugsunarefni, ekki livað sízt á þess- um umrótstímum og haturs. Hvað segirðu um þann mann, sem með græðgi ginnir fé út af náunga sínum? Hann, sem aðeins hugsar um það eitl, að eignast meiri og meiri auð, tivað sem það kostar? Hver verða spor- in, sem liann lætur eftir sig? Hvað segirðu um flagarann, sem aðeins hugsar um

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.