Kirkjuritið - 01.04.1946, Blaðsíða 61
Kirkjuritið.
Hann býður ennþá.
171
algóði, andlég, vera, sem gegnumstreymir alla tilveruna,
harin er eins og postulinn orðar það: „ekki fjarlægur
neinum af oss, þvi í honum erum, lifum og hrærumst
vér.“ Af kenningu Jesú getur hinn (rúaði og hugsandi
máður séð liönd Guðs alls staðar að verki, hann er í hinu
sinæsta duftkorni, i sérliverri mannlegri sál, eins og
sólkerfi liimins og linattaraðir alheims lúta lians stjórn.
Lárviðarskáldið orðar þetla af sinni venjulega snilld:
„Hann heyrir stormsins hörpuslátt,
hann hevrir barnsins andardrátt,
h’ann heyrir sínum himni frá,
liverl bjartaslag þitt jörðu á.“
Þegar Jesús fyrstur flutti mönnunum þennan hoð-
skap, mætti hann örðugri mótspvrnu. Guðshugmynd
fornaldarinnár var svo gagnólík ])essu. Að hugsun sam-
tíðarmanna Jesú var Guð fjarlægur mönnunum, ríkti
á himni, hátt hafinn yfir alll liið jarðneska og tíman-
lega. Kæmi hann liingað lil jarðar, var hann lokaður
mni i musterunum eða tvllti sér á fjallatindina, til þess
uð fjarlægjast ekki himininn um of. Af þessari trú ska])-
aðisl helgin á vissum fjöllum í löndum fornaldarinnar;
þangað komu guðirnir ef til vill, en nær mönnunum
ekki. En Jesús segir: „Hann er ekki þaú og hann er ekki
hér. Guðsríki er liið innra með yður.“ Guðsríki er í
liverri mannssál, hann er ekki fjarlægur neinum af oss.
Þessi hugsun liggur oss nútíðarmönnum furðanlega
Ijarri, þessi vitund, að vér erum ekki einir, að kraftur
Þuðs gegnumstreymir allt, að Guð er lífið sjálft, í hverri
mvnd sem það birtist. Lífið sjálft er kraftur Guðs. Það
er liii'ðanlega fjarri hugsuriarbætti nútímamanna að
'eikna með Guði, stjórn haris, lögmálum, vilja og ná-
lægð. Sú vitund er flestum óþekkt, að vér séum i stöð-
l|gu sambandi við annan heim og æðri, slöðugl undir
ahrifum himneskra afla og stjórnumst af þeim. Og í
þessu vitundarléysi um hinn andlega heiin mun vera