Kirkjuritið - 01.09.1948, Síða 50
224
KIRKJUROTÐ
Á síðasta Alþingi voru afgreidd ný lög um sóknargjöld, er
koma til framkvæmda á næsta ári þannig, að sóknargjöld þau,
er falla í gjalddaga á árinu 1949, verða á lögð og innheimt
samkvæmt hinum nýju lögum. í lögunum er ákveðið, að kirkju-
gjald skuli vera 3—6 krónur á hvern gjaldanda, og skal upp-
hæð þessi innheimt með vísitöluálagi. Auk þess eru nokkrar
breytingar á gildandi ákvæðum um gjaldskyldu, og ennfremur
er nokkuð breytt ákvæðum um aukaniðurjöfnun, þar sem tekjur
kirkju eigi hrökkva fyrir nauðsynlegum útgjöldum.
Með þessari nýju löggjöf er áreiðanlega stigið mjög mikil-
vægt spor í þá átt að tryggja sæmilegan fjárhag kirkna lands-
ins, en fjárhagsleg afkoma margra þeirra hefir á hinum
síðari árum verið svo slæm, að þær hafa naumast getað greitt
hin allra nauðsynlegustu gjöld, hvað þá staðið straum af við-
haldi kirkjuhúss og kirkjugripa, eða safnað nokkru fé í endur-
byggingarsjóð.
Vona ég, að þessi nýju lög verði til þess, að viðhald kirkju-
húsanna batni stórlega á næstu árum, en því hefir víða verið
mjög ábótavant, en hins vegar örðugt að finna að því eða
krefjast umbóta, þar sem kirkjurnar voru með öllu févana.
í þessu sambandi vildi ég gjarnan mega vekja athygli prest-
anna á þeim sið, sem sumstaðar hefir verið tekinn upp fyrir
forgöngu prestanna, að helga einn dag á ári hverju sérstaklega
því hlutverki, að prýða umhverfi kirknanna svo og kirkju-
garðana, með því meðal annars að gróðursetja þar blóm og
trjáplöntur. Um þetta mál hefir prófasturinn í Dalaprófasts-
dæmi, séra Pétur T. Oddsson, skrifað athyglisverða grein í
blaðið Tímann og lýsir þar reynslu sinni af slíkum kirkjudegi
í sóknum sínum. Um svipað efni hefir og sóknarpresturinn
á Reynivöllum, séra Halldór Jónsson, skrifað grein, sem vænt-
anlega birtist í næsta Kirkjublaði.
Næst vil ég víkja nokkrum orðum að kirkjusöngnum í land-
inu. Þar hafa orðið stórstígar framfarir á síðustu árum eða
síðan söngmálastjóraembættið var stofnað 1941. Þá munu hafa
verið til 4 kirkjukórar á öllu landinu. Nú eru þeir 124 og hafa
19 bætzt við á þessu sýnódusári. Fimm kirkjukórasambönd, er
hvert um sig nær yfir eitt prófastsdæmi, hafa verið stofnuð
á árinu. Héldu kirkjukórasamböndin alls 7 söngmót, og voru