Kirkjuritið - 01.09.1948, Qupperneq 62
236
KIRKJURITIÐ
an og prestastéttin ekki geti hjá komizt að láta sig skipta.
Á ég þar við kristindómskennsluna í framhaldsskólunum,
þann tíma, sem fræðslu í kristindómi er ætlaður, eða ef
til vill væri réttara sagt, ekki ætlaður.
Samkvæmt hinu nýja kerfi er skólaskyldutími barna
lengdur upp í 15 ára aldur. Er svo til ætlazt, að þau taki
fullnaðarpróf úr barnaskólunum 13 ára gömul, en fái síð-
an 2 ára framhaldsnám í miðskólum, sem víðast hvar,
t. d. á Akureyri, eru settir í samband við Gagnfræðaskól-
ann.
Nú er það svo, að þó að fræðslulögin hafi verið gerð
og frá þeim gengið á Alþingi fyrir alllöngu, eru ekki enn-
þá tilbúnar neinar reglugerðir, sem kveða ákveðið á um
framkvæmd laganna eða kennslufyrirkomulag náms-
greina. Ég er í fræðsluráði Akureyrar, og við, sem þar
sitjum, höfum ekki, mér vitanlega, orðið ennþá varir neinn-
ar slíkrar reglugerðar frá fræðslumálastjórninni. Hins veg-
ar er mér kunnugt um, að skólastjóri Gagnfræðaskólans
á Akureyri, sem líka er skólastjóri miðskólans, hefur skil-
ið lögin svo, að kristnum fræðum sé aðeins ætlaður 1 tími
á viku í fyrri bekk miðskólans, og upp úr þeim bekk eigi
börnin að fermast, og þá eigi þeirri fræðslu að vera að
fullu lokið frá skólans hálfu.
Nú er það einnig svo, að talsverður hluti barnanna, að
minnsta kosti á Akureyri, og sennilega víðar, sérstaklega
í kaupstöðunum, fer alls ekki í miðskólana, heldur beina
leið í gagnfræðadeildir menntaskólanna. Eftir fræðslulög-
unum á að vísu að leggja þær niður, en það ákvæði hefir
mætt svo eindregnum mótmælum, a. m. k. norðanlands,
að úr því verður vonandi ekki. En í gagnfræðadeild
Menntaskólans á Akureyri er engin kristindómskennsla.
Verður því niðurstaðan af þessu fyrirkomulagi sú, að þau
börn, sem standast fullnaðarpróf 13 ára gömul úr barna-
skóla, eiga að fá 1 tíma í kristindómi á viku í eitt ár, ef
þau halda áfram námi í miðskóla, en enga fræðslu, ef
þau fara í gagnfræðadeildir menntaskólanna.