Kirkjuritið - 01.09.1951, Blaðsíða 30
196
KIRKJURITIÐ
í Borgarfirði, Garðskirkju í N.-Þingeyjarprófastsdæmi, Saur-
bæjarkirkju á Kjalamesi, Glaumbæjarkirkju í Skagafirði,
Reykholtskirkju í Borgarfirði, Borgarkirkju á Mýrum, Bæjar*
kirkju í Borgarfirði, Staðarkirkju í Hrútafirði, Reynistaðar-
kirkju í Skagafirði og Villingaholtskirkju í Árnessprófasts-
dæmi. Til þessara viðgerða hafa verið veitt lán úr Hinum al-
menna kirkjusjóði, samtals 96 þúsund krónur.
Lokið hefir verið að mestu leyti byggingu prestsseturshúsa
á Akureyri, Djúpavogi og Hruna. En í smíðum eru prests-
seturshús á Heydölum og Ásum í Skaftártungu. Endurbætur
hafa farið fram á allmörgum eldri prestssetrum. Enn er rétt
í þessu sambandi að geta þess, að kirkjumálaráðherra ákvað
á síðastliðnu sumri að leggja niður Viðvík sem prestssetur,
en reisa jafnframt prestsseturshús að Hólum í Hjaltadal, °%
er byrjunarfjárveiting til þess húss á gildandi fjárlögum.
Alls eru á gildandi fjárlögum veittar til byggingar prestsset-
urshúsa 600 þúsund krónur, til útihúsa 200 þúsund og til
endurbóta á eldri prestssetrum 300 þúsund krónur.
Miðað við byggingarþörfina á prestssetrunum annars vegar
og ríkjandi dýrtíð hins vegar, sem veldur því að sæmilegt
prestsseturshús mun kosta nú allt að kr. 400 þúsund, eru
þessar fjárveitingar allsendis ófullnægjandi, og er langt fra
því að nægja til byggingar tveggja prestsseturshúsa, í stað
þess að ætlazt var til, þegar lögin um hýsingu prestssetra
voru sett, að 4 slík hús yrðu reist á ári, enda stóð það ákvæði
í frumvarpinu upphaflega, en var fellt niður í meðferð þings-
ins, þó eigi á þeim forsendum, að það væri eigi full þörf a
byggingu fjögurra húsa árlega, heldur ’vegna hins, að það
þótti ekki varlegt að lögbinda slíka fjárveitingu um langa
framtíð, heldur yrði hún að einhverju leyti að fara eftir hag
og afkomu ríkissjóðs á hverjum tíma.
Nú hefir þörf undanfarinna ára kallað svo mjög á fram-
kvæmdir, að fjárveitingum hvers árs hefir að verulegu leyt1
verið eytt fyrirfram, og nú er svo komið, að ráðuneytið hefir
beinlínis tekið lán hjá einstökum prestum og fyrirtækjum,
lán sem óhjákvæmilegt verður að greiða af fjárveitingum
næstu ára.
Af þessu er sýnt, að ef byggingar prestsseturshúsa og við-
gerðir eldri prestssetra eiga ekki gjörsamlega að stöðvast a