Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 38
204
KIRKJURITIÐ
með öllu óeðlileg, þar sem þjóðinni hefir fjölgað um marga
tugi þúsunda á síðastliðnum 40 árum, en tala prestanna hins
vegar aðeins 9 hærri en lögin frá 1907 ákváðu. En með þeim
lögum var prestum landsins fækkað úr 141 í 106, og hefir
sú stórfellda fækkun verið að koma til framkvæmda á undan-
förnum áratugum, þrátt fyrir stöðuga fjölgun þjóðarinnar.
2. Hins vegar getur prestastefnan fallizt á, að vegna breyttra
aðstæðna sé fyllilega réttmætt að endurskoða prestakallalög-
gjöfina, með það fyrir augum, að starfskraftar prestanna fái
sem bezt notið sín.
3. Prestastefnan fellst á hugmynd skipulagsnefndarinnar
um kennsluprestaköll, enda sé tillit tekið til þess í launakjör-
um og starfsundirbúningi, að presturinn eigi að hafa kennslu
með höndum.
4. Prestastefnan telur, að ekki sé rétt að ætla hverjum
presti meira en 4 sóknir, ef starf hans eigi að koma að full-
um notum.
5. Prestastefnan álítur, að við staðsetningu prestssetra skuli
tekið tillit til staðhátta. í sveitum landsins sé unnið að þvl>
að upp rísi menningarmiðstöðvar, þar sem unnt sé að sam-
ræma sem bezt starfskrafta opinberra aðila. Prestssetur séu
ekki flutt frá fomfrægu helgi- og menningarsetri sveitanna,
nema sýnt sé, að presturinn hafi annars staðar betri starfs-
aðstöðu. Hún varar alvarlega við fljótfæmi í þessu efni, Þar
eð dæmi em til þess, að allfjölmenn þorp hafa svo að segja
lagzt í eyði, eða fólksfjöldi minnkað þar engu síður en í sveit-
um. Að sjálfsögðu sé þeirri meginreglu haldið, að kirkja sé
á prestssetrinu.
6. Prestastefnan telur, að fyrri samþykktir um prestsþjón-
ustu í Skálholti eigi að gilda, og vísar í því efni til frumvarps
um endurreisn Skálholtsstóls, er stjómskipuð nefnd hefir þegar
lagt til við ríkisstjómina, að borið verði fram á Alþingi.
7. Prestastefnan þakkar þá ákvörðun kirkjustjómar að
flytja prestinn heim til Hóla, og væntir þess, að það verð1
upphaf þeirrar kirkjulegu endurreisnar Hólastóls, sem hugir
Norðlendinga standa til.
8. Prestastefnan telur, að fjölga skuli prestum í Reyk]a'
vík, eins og lög standa til, og að æskilegt sé, að í hverri sókn
sé einn sóknarprestur.