Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 71
GÓÐTEMPLARAREGLAN 100 ÁRA
237
un hennar, svo að það félagsform var orðið æði þekkt
og vinsælt. Ýmsar slíkar reglur, er höfðu bindindisheit
að inntökuskilyrði, höfðu einnig verið stofnaðar. En Góð-
templarareglan var sú þeirra, sem starfaði á einna breið-
ustum grundvelli, vildi ná til allra, karla og kvenna,
eldri sem yngri, og verða alheimshreyfing, er næði sem
flestum mönnum inn í félagsskap sinn.
Reglan óx einnig mjög ört hina fyrstu áratugi. Árið
1876 er tala féiaga hennar orðin 721 þúsund, og það hefir
hún orðið hæst. En ýmsar deilur og erfiðleikar innan
Reglunnar ollu sundrungu og jafnvel klofningi, svo að
mjög fækkaði félögunum næstu áratugina. örlagarikust
varð þar deilan um afstöðuna gagnvart Svertingjum.
Reglan hafði þó frá öndverðu sett sér það mark að taka
ekkert tillit til litarháttar manna, kynþátta né trúar-
bragða, en fráhvarf frá þeirri meginreglu olli mesta tjóni.
I megingrein hennar héllt þó sú stefna velli, og hefir svo
verið síðan til þessa dags.
Reglan barst til Norðurálfu árið 1868, er fyrsta stúkan
var stofnuð á Englandi. Á síðustu áratugum hefir hún
átt sér aðalból á Norðurlöndum, en mjög er nú fækkað
félögum hennar í Ameríku. Lang-fjölmennust er Reglan
1 Svíþjóð, þar sem nær 186 þúsund manna teljast félagar
hennar, þá í Noregi, rúmlega 45 þúsund, en í hlutfalli við
íbúatölu er hún fjölmennust á Islandi, þar sem 7,57%
teljast félagar. Félagatalan hér á landi var um síðustu
áramót 10924, af þeim 4683 í stúkum fullorðinna, en 6241
J barnastúkum.
Góðtemplarareglan á Islandi hefir alltaf starfað í góðri
samvinnu við kirkjima, og margir af beztu liðsmönnum
hennar verið úr hópi presta, eins og prestar urðu fyrstir
th þess að hefja hér á landi baráttuna fyrir málstað
bindindisins. Kirkjan hefir einnig margoft viðurkennt
starf Reglunnar, og nú síðast á þessu sumri með því, að
biskup landsins þjónaði fyrir altari í Akureyrarkirkju,
ásamt vígslubiskupi Hólastiftis, við setningu Stórstúku-