Kirkjuritið - 01.01.1956, Síða 31
Scra Sigurbiörn A. Qíslason
áttrœður
Séra Sigurbjörn Á. Gíslason er
fæddur í Glæsibæ í Sæmundarhlíð
1. janúar 1876. Foreldrar hans voru
Gísli Sigurðsson, lengi bóndi að
Neðra-Ási í Hjaltadal, og Kristín
Björnsdóttir, kona hans.
Sigurbjörn varð stúdent frá
Lærðaskólanum í Reykjavík 1897 og
kandidat frá Prestaskólanum 1900.
Hlaut hann mjög háa I. einkunn
við hvorn tveggja skólann. Síðan
stundaði hann framhaldsnám í guð-
fræði á Norðurlöndum í 16 mán-
uði samfleytt Og enn átti hann á
næstu árum öðru hverju dvöl erlendis, m. a. í Vesturheimi, til
þess að kynna sér kirkjumál og uppeldismál. Og mörg kirkjuleg
°g kristileg mót hefir hann sótt, sem hér yrði of langt upp að
felja. En til alls þessa mun hann hafa varið 3—4 árum ævi sinnar.
Hann naut styrks frá danska heimatrúboðinu og konungi til
kristilegrar starfsemi innan þjóðkirkju íslands 1901—1925, og ferð-
aðist um landið í nærfellt 30 ár til þess að tala um kristindóms-
mál. Hann var kennari við Vélskóla íslands 1915—1945, og við
fleiri skóla hefir hann kennt. Hann var vígður til prestsþjónustu
' Elliheimilið Grund í Reykjavík 23. ágúst 1942, en hann átti
huinkvæðið að því, að sú mikla og merka stofnun var reist.
Hegnir hann enn þessu prestsstarfi. Hann var einn í nefnd þeirri,
ei Vann að undirbúningi löggjafarinnar um barnavernd og for-
"laður barnaverndarráðs 1932—36. Yfirleitt hefir hann látið
•nannúðarmál og líknarmál mjög til sín taka. Hann var ritstjóri
'laðsins Bjarma um fjölda ára.