Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 32
22
KIBKJURITIÐ
Þótt aldur séra Sigurbjarnar sé orðinn svo hár, brennur hon-
um sami áhugaeldur í brjósti sem á yngri árum, og fáir eru fús-
ari né fljótari en hann til þess að leggja þeim málum lið, er hann
telur góð vera. Verður honum vissulega aldrei borin leti á brýn.
Ég hefi átt sæti með honum um hríð í ýmsum nefndum og get
því dæmt um þetta af eigin raun, og jafnframt það, hve samvinnu-
þýður hann hefir reynzt þar.
Hann kvæntist 27. júní 1902 Guðrúnu Lárusdóttur fríkirkju-
prests Halldórssonar. Hún andaðist 20. ágúst 1938. Þau eign-
uðust tíu börn, og lifa fimm þeirra.
Kirkjuritið samfagnar séra Sigurbirni á þessu merkisafmæli
og óskar þess, að kvöldið verði honum gott og fagurt, og liann
reyni það jafnan í ríkum mæli, að þeir, sem vona á Drottin, fá
nýjan kraft. — A. G.
Mijndin hór, og framan á kápu, er af Flateyrarkirkju í Önundar-
firði, sem var vígð 1936. Mtjndina tók Guðmundur Ágústsson
véífræðingur frá Birtingáholti.