Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 33
Scra Svcinn Vtkingur scxtugur
Séra Sveinxi Víkingur er
fæddur að Garði í Keldu-
hverfi 17. janúar 1896, sonur
Gríms bónda þar Þórarinsson-
ar og Kristjönu Guðbjargar
Kristjánsdóttur, konu hans.
Hann varð stúdent utan-
skóla frá Menntaskóla Reykja-
víkur 1917 og lauk embættis-
prófi í guðfræði við Háskól-
ann snemma á árinu 1922. Því
næst varð hann aðstoðarprest-
ur séra Halldórs Bjarnarsonar
að Skinnastað til 1924, vígður
18. maí 1922. Árin 1924-1926
var hann settur prestur í Þór-
oddsstaðarprestakalli. Skipaður prestur í Dvergasteinsprestakalli
1926 og sat fyrst að Dvergasteini 1926—1938 og var bóndi jafn-
framt, en síðan í Seyðisfjarðarkaupstað 1938—1942. Þá fluttist
hann til Reykjavikur og gerðist skrifstofustjóri biskups og hefir
verið það síðan.
Séra Sveinn er atorkumaður mikill og skyldurækinn, predikari
agætur, og þótti mikið koma til prestsskapar lians. Hann er
hæði fjölhæfur og fjölvitur, prýðilega ritfær og skáldmæltur
Veh en fer dult með þá gáfu sína. Þykir honum sem nógu marg-
11 fáist við að yrkja og birta ljóð sín, þótt hann gangi undan.
Skrifstofustjóraembætti sitt rækir hann svo vel, að vart verð-
U1 a hetra kosið. Auk þess er hann mjög skemmtilegur maður
1 samvinnu, glaður og orðheppinn. Er hann einn þeirra manna,
Sem sífellt vex við nánari kynni.
Hann er kvæntur Sigurveigu Gunnarsdóttur frá Skógum í
xnrfiiði, og eiga þau tvo svni og tvær dætur.
Kirkjuritið óskar honum aílrar blessunar á þessum tímamót-
Um ævi hans. Á. G.