Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 38
Mtllaka íslands í alþjóðlegu æskulýðsmóti
í Kaupmannahöfn dagana 22.—24. ágúst 1955.
STUTT SKÝRSLA
Dagana 22.-24. ágúst var haldið í Kaupmannahöfn alþjóðlegt
æskulýðsmót á vegum Alþjóða vinahreyfingarinnar (World Fri-
endship Federation). Alls tóku þátt í mótinu hátt á fjórða hundr-
að unglinga á aldrinum 14—18 ára frá 18 löndum í Evrópu og
Ameríku.
Alþjóða vinahreyfingin var upphaflega stofnuð fyrir stríð, en
á stríðsárunum lá auðvitað allt starf hennar niðri. Að styrjöld-
inni lokinni hófst það aftur af miklum krafti. Eru nú starfandi
félagsdeildir í ýmsum löndum, en fjölmennastar eru deildirnar
í Danmörku og Englandi. Formaður hreyfingarinnar er Wales-
búi, Short að nafni, en aðalstöðvar hennar eru í Kaupmannahöfn.
Tilgangur Alþjóða vinahreyfingarinnar er, eins og nafnið bend-
ir til, að stuðla að og auka vináttu og skilning þjóða í milli.
Hyggst hún bezt ná því marki með því að auka kynni þjóða
í milli og gefa sem flestum einstaklingum tækifæri til að kynn-
ast öðrum þjóðum af eigin raun. Þetta starf hefir einkum ver-
ið tvíþætt: Haldin hafa verið nokkur mót, þar sem unglingar
frá mörgum löndum hafa kornið saman til umræðna um sam-
eiginleg áhugamál. Þetta mót í Kaupmannahöfn er hið stærsta
slíkra móta. Ennfremur hefir verið komið á skiptiheimsóknum
unglinga. Hefir þeim verið hagað þannig, að unglingar frá einu
landi hafa farið í heimsókn til annars lands, dvalið þar nokkurn
tíma, búið á heimilum jafnaldra sinna og fengið tækifæri til að
kynnast landi og þjóð. Að ári hafa þeir svo tekið á móti fyrri
gestgjöfum sínum í heimsókn. Þannig liefir hreyfingin stuðlað
að víðtækum ferðalögum æskufólks með litlum tilkostnaði. Hafa
þessar skiptiheimsóknir gefizt mjög vel og orðið vinsælar víða
um lönd.