Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 39
ALÞJÓÐLEGT ÆSKULYÐSMÓT
29
Þá hefir danska félagsdeildin haft forgöngu um hinar svo-
nefndu fenningarbarnaferðir, þar sem fermingarbörnum er boð-
ið í viku ferðalag til Sviss, Ítalíu eða Austurríkis, í stað þess að
stórfé sé eytt í fermingarveizlur. Hafa slíkar ferðir mælzt mjög
vel fyrir. Alls munu yfir 6000 dönsk fermingarbörn hafa farið
slíkar ferðir. í haust munu hafa ferðast um 500.
Islendingar tóku nú í fyrsta sinni þátt í starfsemi Alþjóða vina-
úreyfingarinnar. Á liðnum vetri barst Menntamálaráðuneytinu
boð um þátttöku í mótinu. Var það. jafnframt beðið um að annast
val unglinganna. Var síðan auglýst eftir þátttakendum til farar-
hinar. Alls munu hafa sótt um rúmlega fimm sinnum fleiri en
heimilt var að senda. Var því valið úr hópnum og sendir 25
'eiglingar, auk fararstjórans, sem var séra Jónas Gíslason, Vík.
^lýrdal. Auk þess voru tveir aukaþátttakendur. Unglingar þess-
U' voru víðs vegar að af landinu, flestir skólanemendur, á aldrin-
Lni 14—18 ára. Veitti ráðuneytið ríflegan styrk til fararinnar.
íslenzku þátttakendurnir lögðu af stað frá íslandi hinn 7. ágúst
111 eð „Dronning Alexandrine“ og komu til Kaupmannahafnar
hinn 12. s. m. Var þeim flestum komið fyrir á einkaheimilum í
Pi'iðriksbergi, þar sem þeir dvöldust til 30. ágúst, er þeir lögðu
af stað heim með sama skipi.
Tilgangur þessa æskulýðsmóts var tvíþættur. Fyrst og fremst
v ar verið að gefa þátttakendum tækifæri til þess að kynnast inn-
byrðis og jafnframt Danmörku, landi og þjóð. Jafnframt voru
rædd þarna ýmis þau vandamál, sem efst eru á baugi í samskipt-
Uir> þjóðanna í dag. Aðalumræðuefni mótsins var: Bandaríki
Evrópu. Ýmsir háttsettir stjórnmálamenn fluttu ávörp og ræður,
m- a- var mótið sett af H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana.
Uinræðurnar fóru fram í húsakynnum Ríkisþingsins danska.
rmsir erfiðleikar eru um framkvæmd slíkra móta, þar sem
þátttakendur koma frá mörgum ólíkum þjóðum. Erfiðasta vanda-
málið var tungumálið. Þrátt fyrir það er óhætt að segja, að mót-
ið tókst ágætlega. íslenzku J)átttakendumir voru allir mjög
Lnægðir með förina. Má segja, að hún hafi tekizt með ágætum,