Kirkjuritið - 01.01.1956, Síða 46
KRISTNIR ÁHRIFAMENN
1
Peter Hognestnd
Björgvinjarbiskup
Norðmenn hafa jafnan verið miklir áhugamenn um trúmál
og átt marga ágæta kirkjuleiðtoga allt fram á þennan dag. Einn
þeirra var Peter Hognestad.
Hann fæddist 12. nóvember 1866 á Túni á Jaðri og var bænda-
ættar. Bar það með sér alla ævi, m. a. í útliti, minnti á hæglát-
an, yfirlætislausan en hlýlegan íslenzkan dalabónda, ef mað-
ur mætti honum á förnum vegi. Reyndist frábær námsmaður á
yngri árum, m. a. mikill málagarpur, og tók guðfræðipróf með
heiðri 1891. Síðan fór hann námsferð til ýmissa landa. Fékkst
við kennslustörf fyrst eftir heimkomuna, en gerðist brátt fram-
kvæmdarstjóri ungmennafélagsins í Stafangri og þótti mjög vel
til þess fallinn. Þá varð hann kennari og eitt ár forstöðumaður
kennaraskólans á Notodden. Um skeið stiftskapellan í Oslóar-
biskupsdæmi. 1908—16 prófessor í Gamla testamenntis fræðum
við guðfræðiskóla safnaðanna í Osló. Síðan biskup í Björgvin til
dauðadags 1. september 1931.
Hognestad var lærður maður, einkum í guðfræði og sögu, og
sakir málakunnáttu sinnar átti hann meðal annars þátt í endur-
þýðingu norsku Biblíunnar. Hann var einn af baráttumönnun-
um fyrir útbreiðslu „landsmálsins“ í Noregi. Vígsla hans var
fyrsta biskupsvígslan, sem framin var á því máli. Síðar átti
Hognestad frumkvæði að því, að helgisiðabókin norska kom út
á landsmáli og mikinn þátt í sálmabókinni, sem prentuð var
á þeirri tungu. Áhugi hans á þessum efnum varð m. a. því vald-
andi, að hann las mjög ýmissar íslenzkar fornbókmenntir, og
fékk ást á íslandi, auðnaðist líka einu sinni að sækja það heim.
Hognestad var fylgjandi Alkirkjuhreyfingunni og tók sem full-
trúi Norðmanna þátt í fundarhöldum á hennar vegum. Á ein-