Kirkjuritið - 01.01.1956, Síða 56
46
KIRKJURITIÐ
þess ætlazt, að höfð sé liliðsjón til aukatekna. Þetta var miðlunartillaga,
sem menn líta efalaust á nokkuð misjöfnum augum. Aðalatriðið virðist, að
prestar og aðrir í þjónustu kirkjunnar njóti áþekkra launa og þeir, sem liafa
svipað undirbúningsnám, og gegna á lika trúnaðarstöðum. — Ymis atriði
mætti ræða frekar í þessu sambandi, t. d. aukatekjurnar. En þessu launa-
stríði er nú lokið, og verður það ekki rakið frekar að sinni.
Eitthvert mesta ritverk Nobelsverðlaunaskáldsins Halldórs Kiljan
Laxness, saga Olafs Kárasonar Ljósvikings, hefir komið út í nýrri útgáfu.
Heita nú öll fjögur bindin Heims Ijós. Áður nefndist fyrsta bindið Ljós
heimsins eins og kunnugt er. (Nú Kraftbirtingarhljómur guðdómsins.) Milli
þessara titla er heilt haf. Þetta minnir mann líka á ákaflega merkilega setn-
ingu, sem skotið hafði verið inn í textann á kvikmyndinni af Sölku Völku,
um undrið mesta, að Jesús Kristur hefði einn dáið heiminum til frelsunar.
Og enn rifjast upp gömul mynd, sem kom i Stúdentablaðinu 1. des. síðast-
liðinn af Kiljani í hvíta voðum. Hver veit hvað þessi íslenzki ritsnillingur
á eftir að boða í framtíðinni, þegar á honum standa augu alls heimsins?
FögUl’ gjöf. Séra Björn Jónsson í Árnesi skrifar: „Óli Guðjón Halldórs-
son, kaupmaður í Reykjavík, Valgerður Guðnadóttir kona hans og systkini
hans, frú Guðrún í Reykjavík, Hannes, kaupmaður á ísafirði, og frú Hallfríð-
ur sama stað, hafa gefið kr. 5.000,00 í orgelsjóð Árneskirkju til minningar
um foreldra sína, Halldór Jónsson, bóndi á Melum, og Guðbjörgu Óladóttur
konu hans. Ennfremur safnaði Óli kaupmaður kr. 2.500,00 meðal ýmissa
vina og sveitunga í sama sjóð. Fyrir hönd sóknarnefndar og safnaðar er
mér ljúft og skylt að þakka þessa góðu og rausnarlegu gjöf.“
Gísli Sveinsson, f. sendiherra og kirkjuráðsmaður, átti nýlega 75 ára
afmæli, og var þess minnzt með fjölmennu samsæti, sem þeim hjónum var
haldið 10. f. m. Margar ræður og kvæði voru flutt heiðursgestinum, og hon-
um þökkuð ágæt störf, m. a. í þjónustu kirkjunnar.
Séra Pétur Ocldsson, prófastur, dvelur við sönglistamám í Þýzka-
landi. Lætur hann vel af líðan sinni, en leggur hart að sér við námið.
Hyggst að taka tvö kennslumisseri í einu. Jafnframt stundar hann fleiri
greinar. Sækir um 30 kennslustundir á viku. M. a. kveðst hann hafa kynnzt
Mikalesbræðrum, sem er félag lúterska presta, er álmga liafa á helgisiðum
og vilja taka upp skriftir. Var á ársþingi þeirra og kynntist mörgum prest-
um. Kemur heim undir vorið.