Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 15
KIRKJURITIÐ
349
félagsþegnum. Til þess er m. a. stöðugt unnið að umbótum á
fangelsunum og meðferð fanganna og farnar ýmsar nýjar leið-
ir, t. d. sú að auka frjálsræði sumra fanga sem allra mest. Og
svo er ekki sízt hitt að hjálpa mönnum til að samlagast þjóð-
félaginu og fá vinnu við sitt hæfi að hegningartímanum liðn-
Ufn. Kveðst ráðherrann hafa haft víðtækt samstarf við kirkj-
Ulla, uppeldisfræðinga og fjölmarga aðra, að því er þetta varðar.
Butler segir í greinarlok: „Það er ekki mitt hlutverk, hver
Se hlutur og skylda kirkjunnar í þessum málum, en mér fund-
Ust nokkur ummæli H. S. Lew, fulltrúa höfuðrabbíans, afar um-
hugsunarverð. Hann vakti athygli á því af fyllstu hógværð og
uðeins í athugunarskyni, að glæpatala unglinga meðal Gyðinga
hefur verið mjög lág eftir styrjöldina. Hann taldi þetta vera
háð þeirri staðreynd, að fjölskylduböndin væru enn mjög sterk
1 hinu gyðinglega samfélagi.
Hér kann að felast vísbending um það, í hvaða átt kirkjan á
fyrst og fremst að beina kröftum sínum. Þótt það kunni að
Vera sagt, að ég sýni feimuleysi með því að leggja áherzlu á
^að, sem kunnugum mönnum sé auðsætt mál, leyfi ég mér að