Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 18

Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 18
352 KIRKJURITIÐ [Myndirnar, sem fylgja þessum pistli, eru teknar traustataki úr Vár kyrka. Kápumyndin er af skátabæn — hin af „lausa- gemsum“.] Óhœfc. Guðsþjónustan er almennasta og mikilsverðasta starfsmeðal kirkjunnar. Samkvæmt markmiði sínu og tilgangi hlýtur kirkj- an því að leitast við að ná til sem flestra með því móti. Og þar sem um þjóðkirkju er að ræða, er ríkinu skylt að styðja hana til þess. Mér hefur alltaf verið ljóst, að útvarpsmessurnar eru á óheppi- legum tíma, en nú veit ég, að óhæfilegt er að líða það lengur, að hér sé ekki breytt um. Öllum hlýtur að skiljast, að tilgang- urinn með þessum messum er sá sami og með öðrum, að ná til sem flestra, en þar að auki er þeim sérstaklega ætlað að vera þeim að liði, sem ekki geta sótt kirkju, sakir elli, vanheilsu eða af mörgum öðrum ástæðum. Þess vegna verður að velja þeim þann tíma, sem því fólki er sérstaklega hentugur, er við slíkt á að stríða. Og þegar sá tími er fundinn, á ekki að vera neinum vandkvæðum bundið að fá hann. Því að sunnudagur- inn er framar öllu helgaður af kirkjunni og helgaður kirkjunni- Þess vegna getur útvarpið ekki sem ríkisstofnun sett henni stólinn fyrir dyrnar um þennan eina klukkutíma, ekki aðeins helgidagsins, heldur allrar vikunnar, sem hún krefst af því. Sá tími, sem nú er ætlaður útvarpsmessunum, mun aðallega hafa verið valinn í upphafi vegna þess, að það er aðalmessutími dómkirkjunnar í Reykjavík. En hann er annars yfirleitt alls ekki messutími annars staðar. Flestum kirkjugestum finnst hann mjög óheppilegur, þar sem þá er undirbúningstími heim- ilanna undir höfuðmáltið hvíldardagsins. Af þeirri ástæðu er hann líka óhentugur sem útvarpsmessutími fyrir allan almenn- ing og þó húsfreyjurnar sérstaklega. En það sem gerir hann með öllu óhæfilegan er, að í höfuðborginni og sennilega út um land líka, er hann matmálstími sjúklinga og gamalmenna a elliheimilunum. Þar af leiðandi er hann blátt áfram því vald- andi, að þeim, sem útvarpsmessan er fyrst og fremst ætluð, er blátt áfram gert ófært að njóta hennar. Þannig verður þesS1 tími kirkjunni til áfellis og háðungar. Það er líkast því, sem hún telji það lítils vert, hvort fleiri eða færri hlusta á boðskap

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.