Kirkjuritið - 01.08.1960, Qupperneq 23

Kirkjuritið - 01.08.1960, Qupperneq 23
Kirkjctn í stormviðri stjórnmálanna á atómöld. Oft hefur kirkja Krists átt í vök að verjast. Ofsóknir hið ytra, ágreiningur og deilur hið innra hafa seint og snemma verið sá níðhöggur, er nagaði greinar og rætur þessa lífsmeiðs eiannkynsheilla. Samt hefur hún ávallt, þegar alls var gætt, varðveitt vaxtar- brodd frelsis og mannhelgi, þrátt fyrir öll mistök og misskiln- ing forystuliðs síns á hverjum tíma. En það hefur samt stund- Urr> sýnzt svo sem öllu hafi verið snúið við, og sá höggvið skæðast, sem helzt átti að hlífa. En allt hefur hún staðið af sér, og kannske ber hún aldrei bjartari greinar né þróttmeiri rætur en nú. En oft var vand- lun voðalegur. Allir hafa heyrt um ofsóknir og píslarvætti íyrstu aldanna, einnig um það, hve erfitt var að verjast villu- kenningum hins háþroskaða heiðindóms, sem hvarvetna smeygði sér inn í skoðanir og siði, eftir að hún hafði náð útbreiðslu í ^estu menningarlöndum við Miðjarðarhaf. Ekki varð meðlætið heldur hótinu betra, eftir að hagur varð að kristnu heiti, svo að hræsni og sýndarmennska skópu andúð °g óvirðingu hinna beztu manna gagnvart kristnum siðum og ^elgivenjum. Síðar andaði og kalt frá deilum og sundrungu, orðaskaki, þröngsýni og umburðarlyndisleysi. Og sannarlega varð kalt Urn kirkjuna í háðstormum skynsemisstefnunnar og skynsem- istrúarinnar, sem gerði mannlegan hroka og skynsemi að guði °g gerði af henni líkneski til að falla á kné fyrir. En vitrustu °g frægustu menn heims töldu auðvelt og skjótunnið að koll- VarPa því, sem 12 fiskimenn hefðu byggt á nokkrum árum. f^annig má lesa rúnir fortíðar, sögu þeirrar baráttu, sem þlrkjan hefur háð öldum saman og orðið furðu sigursæl fyrir

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.