Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 24

Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 24
358 KIRKJURITIÐ anda hans og almætti, sem var stofnandi hennar og er líf hennar og hjartsláttur æ of aldir. En hvernig birtist þessi barátta kristinnar kirkju nú á þess- ari miklu öld uppfyndinga og eldflauga, geimkönnunar, tungl- skota og styrjalda? Er sú barátta svipuð og áður, svo að allar aðferðir óvina séu kunnar og ekki sé því nauðsyn að líta í kringum sig, né gjalda varhuga við nýjum aðferðum til árása og sigurvinninga. Sagt er, að hver öld hafi sína siði og svo mun enn. Þær að- gerðir og sú hertækni, sem nú er beitt af óvinum kirkjunnar, er nú með allt öðrum blæ og ráðum en áður var. Fáar sögur ganga um algert píslarvætti og engum sögum fer af skurðgoðamyndum fegurðar eða hugsjóna, sem reistar séu á stalla að fordæmi stjórnarbyltingar í Frakklandi á 18. öld. En þeim mun lengra er nú gengið í því að lítilsvirða kirkj- una og þegja hana í hel sem úrelta og einskisverða stefnu, sem löngu síðan hafi misst gildi það, sem hún kannske hafði einhvern tíma. Upplýstu nútíðarfólki séu öll trúarbrögð heimska og hjátrú, eins og einn af vísindamönnum þessarar þjóðar lýsti yfir í víðlesnasta blaði landsins fyrir skömmu. Sem sagt, kirkjan sé aðeins fyrir heimskingja og hálfgerð nátttröll frá löngu liðnum öldum, sem menntað fólk telji nú langt undir sinni virðingu að fylgja. Hins vegar eru svo hvarvetna reist skurðgoð, sem eru stein- styttur af þessum eða hinum harðstjóra og einvalda aldarinn- ar, sem taldir eru guðir þetta árið, en djöflar og brjáluð mann- dýr næsta árið, og það af sömu mönnum og þjóðum. Vissar stjórnmálaöfgar, sem nefndar eru ýmsum nöfnum eftir velþóknun og hyggjuviti forystumanna hverju sinni, eru svo prédikaðar sem trúarbrögð, því að eitthvað verður fólkið að hafa til að trúa á, þegar Guð kirkjunnar er settur af og byrgður í rykskýjum blekkinga og lyga, sem ganga nú undir hinu fína nafni áróður. Þessar öfgar eru jafnóhugnanlegar, hvort sem þær eru til hægri eða vinstri, vesturs eða austurs, sem kallað er. Þær ganga yfirleitt í þá átt að gera hlut manndýrkunarinnar sem mestan og hlut kristindóms og kirkju sem minnstan. Ekki þannig að ráðast beint gegn henni, síður en svo, Sumar öfg' arnar í trúmálalífi stjórnmálanna flagga jafnvel með henm

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.