Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 27
KIRKJURITIÐ
361
seti því yfir skýrt og skorinort, að hin socíaliska guðleysis-
stefna „aþeismi“ skyldi framvegis vera ríkistrúarbrögð hins
austurþýzka alþýðulýðveldis.
Þannig er þá komið hag lútersku kirkjunnar í föðurlandi
Marteins Lúthers, þar sem vagga mótmælendastefnunnar og
siðaskiptanna stóð. Og þar teljast enn um 85 af hundraði fólks-
ins til hinnar evangelisku kirkju.
Ekki er því að leyna, að stjórnendurnir virðast í dálitlum
vanda með helgisiði, sem komi í stað helgiathafna kirkjunnar,
sem fólkið er vant og þráir í einhverri mynd.
Og þá gerist það, sem fyrr er innt að. Þeir reyna að sníða
sér helgisiði handa þegnunum eftir fordæmi kirkjunnar.
Það eru beinlínis byggðir upp aþeiskir eða guðstrúarlausir
helgisiðir til andstöðu gegn helgiathöfnum kirkjunnar, en til
þess að svara trúarþörf fólksins. Og kemur þar auðvitað glöggt
1 Ijós og að góðu gagni, að kommúnismi hefur alltaf verið boð-
aður öðrum þræði sem trúarbrögð og reynt að slá á viðkvæma
tilfinningastrengi í hjörtum fólks, bæði trúarlega og þjóðern-
islega.
Þessi stjórnmálalega andstöðukirkja kvað nú þegar hafa sín
tO boðorð, sínar eigin kirkjulegu eða ókirkjulegu athafnir, pré-
hikara og sálusorgara, sem auðvitað eru ríkislaunaðir emb-
®ttismenn.
Þessi menningarlega tilraun á upphaf sitt í nýrri borg, sem
heitir Stalinstadt og hefur vaxið upp umhverfis stálverksmiðj-
Ur við Oderfljótið. Hún var stofnuð 1951 og hefur nú um
20.000 íbúa.
I þessari borg er ekkert og á ekkert að vera, sem minni á
hapítaliska fortíð og því auðvitað engar kirkjur. En þar hefur
horgarráðið samið heimsins fyrstu aþeisku eða guðleysis-
helgisiði.
Eyrst er þar socíalisk borgaraleg nafngjöf, þá socíalisk borg-
araleg hjónavígsla, og svo auðvitað borgaraleg eða socíalisk
otför. Auðvitað eiga allir þessir helgisiðir að bæta upp og koma
1 stað hliðstæðra kirkjulegra ritúala eða ceremonía.
Þeta hefur allt verið prófað í Stalinstadt, en skal nú inn-
leitt um allt Austur-Þýzkaland.
I inngangsorðum þessarar nýju ,,helgisiðabókar“ er þess get-
að hátindar og hátíðastundir mannsævinnar, fæðing, gift-