Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 28
362
KIKKJURITIÐ
ing og greftrun, hafi hingað til verið notaðar í þágu arðræn-
ingjanna, og því hafi kirkjan gefið þeim hátíðlegt form til að
tengja fólkið sínum skoðunum. Nú skuli þessari ósvinnu lokið.
En hins vegar skuli hið mannlega innihald þessara hátíða-
stunda í ævi hins vinnandi fólks fá að njóta sín í baráttunni
til eflingar friði, félagshyggju og lýðræði.
Á þessum grundvelli hefur borgarstjórnin í Stalinstadt stofn-
að mörg embætti manna, sem mætti nefna tækifærisprédikara.
Þeir eiga að flytja ræður við nafngjafir, hjónavígslur og greftr-
anir. Ennfremur er skylda þeirra að útvega nauðsynleg húsa-
kynni og viðhafnarsali fyrir þessar athafnir í ráðhúsum, fé-
lagsheimilum og stjórnarbyggingum.
Einnig ber þeim að sjá um blóma- og Ijósaskreytingar, fána,
kórsöng og hornamúsik, þegar mikið skal við haft. Við nafn-
gjöf og brúðkaup eru þeir í smoking, en við útfarir hefur
þeim verið gerður sérstakur hátíðabúningur.
Ennfremur eiga þeir að vera sálusorgarar, sem búa foreldra,
brúðhjón og syrgjendur undir þær hátíðastundir, sem þau eiga
að taka þátt í.
Eftir þessar leiðbeiningar eru orðuð í helgisiðunum sérstök
loforð, sem hlutaðeigandi fólk á að játa eða undirskrifa við
athöfnina. T. d. við nafngjöf eiga foreldrarnir að skrifa undir
eftirfarandi skuldbindingu:
Við ætlum að ala barnið okkar upp í anda socíalismans sem
hugsandi, starfandi ríkisþegn hins þýzka Alþýðulýðveldis.
Svipað gildir með skuldbindingu við hjónavígslu, þar er ekki
einungis heitið ævilöngu samfélagi hjónanna, heldur einnig að
styrkja ríkið og efla útbreiðslu hins socíaliska þjóðskipulags-
Ræður þær, sem fluttar eru við þessi tækifæri, skulu og
byggðar upp í vissu formi. Þar eru viss aðalatriði, sem ekki
má sleppa. Og auðvitað er tillit til alþýðulýðveldisins í fyrsta
sæti.
Við nafngjöf er talað á þessa leið: „Bændur og verkamenn
Þýzka alþýðulýðveldisins heilsa með gleði hverjum nýfæddum
þegni. Þeir hafa valdið og máttinn til að veita sérhverju barm
bjarta framtíð."
Við hjónavígslu skal lögð áherzla á það, að ríkið geti vernd-
að hjónabandið, en það geti trúarbrögðin ekki, því að ÞaU
byggi á Guði, sem ekki er til. Þess vegna sýni þau jarðlífinU