Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 32

Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 32
Húsavíkurkirkja fyrir siðaskipti. Flutt á 50 ára afmæli kirkjunnar 2. júní 1957. Hér verður ekki fluttur nema stuttur þáttur úr sögu kirkj- unnar fyrir siðaskipti. En því hef ég valið þetta viðfangsefni, að tiltölulega er lítið vitað um sögu kirkjunnar á þessu tíma- bili, og væri þess vegna fremur einhver leið að gera því efni nokkur skil í stuttu máli. Níu eða tíu aldir er langur tími, og berast ekki minningar frá manni til manns yfir svo langt árabil. Mundi nú öll hin forna saga þjóðar vorrar vera kafin í sand gleymskunnar, ef kirkjan hefði ekki í öndverðu kennt börnum sínum ritlistina, þessa merkilegu íþrótt, sem norrænum mönnum var áður lítt kunn. En jafnvel margar þær skrár, sem gerðar voru á fyrstu öldum kristninnar hér á landi, eru nú fúnar og týndar, og ÞV1 höfum vér við fátt að styðjast um upphaf og elztu sögu kirkj- unnar nema örfá bréf, sem enn standa eins og brimsorfin sker úr kafi gleymskunnar. Annað timburrek af tímans stórasjó er svo fátæklegt og slitrótt, að erfitt er að henda reiður á og brúa bilið á milli, svo að af geti orðið samfelld saga. Hér verður því aðeins um fáeinar athuganir að ræða. Hinn forni kirkjudagur. Alla stund frá því Garðar Svavarsson átti vetrardvöl á Húsa- vík fyrstur norrænna manna og þræll hans Náttfari') narn yndi á þessum slóðum, hefur efalaust verið einhver manna- i) Sumir hafa dregið í efa, að Náttfari hafi verið þræll, en hvort tveggja er, að Hauksbók nefnir hann þræl, enda bendir hvorki nafn hans né hrakningar fyrir öðrum landnámsmönnum á, að hann hafi verið kynborinn eða mikill fyrir sér.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.