Kirkjuritið - 01.08.1960, Page 37
KIRKJURITIÐ
371
líndúkur, sem hafður var undir sakramentið. Komnir voru í
kirkjuna tveir altarissteinar, en þessir steinar voru stundum í
umgerðum og höfðu að geyma helga dóma. Auk þess: þrjár
brúnir framan á altari, þrír krossar, auk hinna smelltu, glóð-
arker, eldberi og kirkjukola. Ennfremur tveir lektarar, sem
reyndar voru þó báðir í slæmu ástandi.
Það er fremur ósennilegt, að kirkjan hafi verið búin að afla
sér svona margra og góðra gripa á fám árum, ef hún hefði
verið rænd skömmu eftir 1420. Má vera, að sögu Hannesar um-
boðsmanns beri að skilja svo, að kirkjan hafi verið rænd að
búfé sínu. En hafi kirkjan verið brennd, hefðu gripirnir átt að
týna tölunni. Hér hefur því annaðhvort eitthvað skolazt í
skýrslu umboðsmanns, eða að registur Ólafsmáldaga um kirkju-
gripi sé í hugsunarleysi tekið eftir eldri skrá, sem er sennilegast.
Prestar.
Að lokum skal gerð stuttlega grein fyrir prestum þeim, sem
nieð vissu hafa þjónað Húsavíkurkirkju fyrir siðaskipti. Sá
fyrsti, sem prestatalið getur um, er:
Jón Skeggjason. Hann hefur sennilega verið orðinn prestur
hér um það bil, sem kirkjan var rænd, svo að það hefur lent
á honum að sjá um endurbyggingu hennar. Jón var prestur á
Húsavík fram yfir 1450, en flyzt þá að Garði í Kelduhverfi.
Hugsazt gæti, að hann hafi verið sonur Skeggja Eldjárnssonar,
sem var prestur á Grund í Eyjafirði skömmu fyrir aldamótin
1400. Annars er lítið vitað um hann.
Ólafur Þorgeirsson. Hann verður prestur á Húsavík um 1452.
Hafði áður verið kirkjuprestur á Hólum í tíð Gottskálks bisk-
ups Kænekssonar, en fór að Bægisá um 1464 og lifði þar síðan
fanga ævi. Hann var mikill framkvæmdamaður, lagði kirkj-
unni á Húsavík til: messuserk, höfuðlín og mundlaug, og lét
hressa mikið upp á kirkjuhúsið, setja í það nýtt gólf og gera
hil undir kórinn. Bendir þetta til, að kirkja sú, sem byggð var
eftir brunann, hafi verið þiljuð innan, enda er ekki talað um
hirkjutjöld 1461. — Séra Ólafur Þorgeirsson var sonur Þor-
geirs Ólafssonar Sigurðssonar lögmanns Guðmundssonar ridd-
ara í Lögmannshlíð, og voru þeir Sigurður príor, afi Jóns bisk-
uPs Arasonar, og séra Ólafur því bræðrasynir. Séra Ólafur
var ástvinur mikill Ólafs biskups Rögnvaldssonar og hafa þeir