Kirkjuritið - 01.08.1960, Page 39

Kirkjuritið - 01.08.1960, Page 39
KIRKJURITIÐ 373 Húsavíkurkirkju 12 merkur, og mundi allt þetta fé hafa num- ið um það bil 50 hundruðum á landsvísu. Sennilega hefur eitthvað kastazt í kekki með Þorsteini og Ólafi biskupi áður en þetta var, og hefur Þorsteinn þótzt verða hart úti og ætlað að ná sér niðri með því að taka undir sig fé Húsavíkurkirkju, en þá farið enn verr, enda var við ofurefli að etja, sem biskupsvaldið var á þeim tímum. Næsti prestur á Húsavík var: Ketill Jónsson. Hann var fæddur um 1497 og alinn upp á Bakka á Tjörnesi, þar sem faðir hans bjó. Átján ára gamall fór hann í skóla að Hólum árið 1515 í tíð Gottskálks biskups Niku- lássonar og gerðist prestur á Húsavik 1519, en fór þaðan að Presthólum og var prestur þar til 1565. Má vera, að hann hafi síðan verið prestur nokkur ár á Sauðanesi, því að lifað hefur hann fram um 1570. Árið 1537 gerist Kolbeinn Auðunarson prestur á Húsavík. Hann var sonur Auðuns Sigurðssonar lögréttumanns í Þing- eyjarþingi Sveinbjarnarsonar prests í Múla, og var Auðun bróð- ir Helgu, barnamóður Jóns biskups Arasonar. Kolbeinn var Pi'estur fram yfir siðaskipti og mikill fyrir sér, eins og þeir frændur fleiri. Lét hann gera upp alla kirkjuna í Húsavík að Ve&gjum og viðum vorið 1548, og mat séra Sigurður á Grenj- aðarstað, frændi hans, þessa kirkjubót á 10 hundruð. Einnig hafði hann lagt kirkunni til margt í bókum, stórt píslarmark °g annað forgyllt, er bæði voru metin á eitt hundrað, og allt eftir því. Hefur Kolbeinn verið fjáður vel og mesti rausnar- ^iaður, því að kirkjan er löngum í skuld við hann, fremur en hann við hana, sem var miklu algengara á þeim tímum. Séra Kolbeinn var fæddur um 1508 og segist 1567 hafa hald- Húsavík meira en 30 ár. Um það leyti, sem hann segir af Ser, telst kirkjan eiga Þorvaldsstaði, sem goldið var eftir 10 surar í landskuld, en heima á staðnum voni 4 kýr, 3 og hálft asauðarkúgildi, 5 tvævetrir sauðir og 10 veturgamlir, og einn hundraðshestur. Aðrar tekjur voru: lambseldi af 15 bæjum og Preststíund af fasteign: 13 aurar. Eftir siðaskiptin eru miklu meiri heimildir um sögu þessa staðar og þá, sem hér hafa búið, svo að ofviða yrði að fjalla Utu það í stuttu erindi. Læt ég því þessum þætti lokið. Benjamín Kristjánsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.