Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 40
Rœða
við endurvígslu Bergsstaðakirkju.
Herra biskup!
Háttvirti prófastur, prestur, söfnuður og gestir!
Þótt það kunni að verða fært mér til nokkurrar fordildar,
játa ég, að mig hefur lengi langað til að ná þeim áfanga, er
vér nú stöndum á. Það mun flestum gleðigjafi, að sjá verki
lokið, og þá löngum því meir, sem það er hugstæðara. Ærin
rök eru fyrir hendi um það, að þetta verk er miklum hluta
þessa safnaðar slíkt, að því fylgir heill hugur og heillavonir.
Ég vil því fyrir hönd hans færa hverjum þeim, sem lagt hefur
að því hug eða hönd, alúðarþakkir. Hér „þýðir ekki að þylja
nöfnin tóm“. Ég sleppi því að tilgreina alla þá, er þessa þakk-
lætis skyldu njóta. Stilli mig þó ekki að nefna þá tvo menn,
sem hafa haft höfuðumsjón með framkvæmd verksins, þá Einar
Evertsen byggingarmeistara á Blönduósi, sem sá um smíðina, og
Friðjón Guðmundsson málarameistara í Höfðakaupstað, sem
málaði kirkjuna með aðstoð nokkurra sóknarbarna. Lofa hér
verkin meistarana.
Hér verður fyrst fyrir að svara spurningunni: Hvað kostaði
verkið? Skal ég freista þess að gera það í fám orðum:
Endurbygging, þ. e. efni og vinna, nam . . kr. 71988,23
Málning og vextir af bráðabirgðalánum . —- 26200,45
Alls nemur því kostnaðurinn ........... kr. 98188,68
Ég geng þess ekki dulinn, að mörgum muni finnast þessi
upphæð mikil. En þess skulum við vera minnug, að nú reiknum
vér íslendingar hag vorn í háum tölum, og hlýtur því svo að
fara einnig hér. Ef við tökum þær upphæðir, sem vér veltum
nú, eða öllu heldur mælum í erfiði okkar, og berum þær sam-
an við þær tölur, sem foreldrar vorir lögðu til grundvallar við
mat á önn sinni, blasir við geysimunur. En væru athafnir kyn-