Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 41
KIRKJURITIÐ
375
slóðanna metnar niður í kjöl, er ekki ólíklegt, að dæmið fengi
drjúgum annan svip. En hér er ekki stund til að rökstyðja það
nánar.
En svo við snúum okkur aftur að fjárreiðunum í dag, er það
um þær að segja, að af þessari upphæð eru kr. 48182.75 fram-
lag að heiman — eign og gjafir, þar af gjafir kr. 19181.24. —
Eg skal ekki þreyta ykkur á að lesa hér þann lista, sem þetta
er skráð á. Þar eru að sjálfsögðu allmisjafnar tölur, — misjöfn
þátttaka, — eins og venjulega gerist í slíkum málum. En benda
vil ég á, að meðal þeirra upphæða er eins og forðum eyrir
ekkjunnar, borinn fram af ást á því málefni, sem unnið er að,
þeirri hugsjón, sem fyrir stafni er, trú á gildi þess, sem gef-
ið er til, — jafngildur og jafnfágaður af fórnfúsri ást, og hann
var fyrir 19 öldum síðan. Ég get ekki stillt mig um að nefna
í þessu sambandi gjöf, sem kirkjunni hefur borizt nýlega, þó
ekki sé hún gefin til endurbyggingar hennar. Guðmann Árnason
frá Klömbrum í Vesturhópi gaf henni á dánarbeði 10 sálma-
bækur. Mér er það sérstaklega ljúft að færa þessum útigengna
einstæðingi þá þökk, er ég get bezta sent og lengst. Mér fannst
°ft hann sanna mér þá staðhæfingu Björnsons, að almættið
standi þeim næst, sem það einangrar.
Mér er það ljóst, að nú eru uppi raddir um, að þetta verk
hefði ekki átt að gerast. Kirkja hér á Bergsstöðum eigi ekki
rétt á sér. Við eigum að hafa eina kirkju fyrir alla sveitina,
enda skaðlaust þó lengra væri seilzt. Þessu vil ég svara með
eftirf arandi:
t fyrsta lagi: Þetta mál hefur verið rætt á safnaðarfundum
^hórg undanfarin ár, og aldrei heyrzt rödd til andmæla því, að
kifkjan væri endurbætt svo vel sem kostur er á. Hitt er stað-
reynd, að sóknarnefnd hefur verið legið á hálsi fyrir það að
hnfa ekki lokið því fyrir löngu. Sú ásökun er á fullum rökum
reist og verður ekki varin hér.
I öðru lagi söguhelgin. Kirkja hefur staðið hér á Bergsstöð-
Ufn, svo víst sé, síðan 1340. Hversu lengi hún hefur þá verið
húin að standa, verður nú trauðla sannað. Víst má telja, að það
hefur numið áratugum, — trúlegast, að hana hafi þá ekki skort
^nikið á öld, hafi það þá ekki verið drjúgum betur. Þessar aldir
hafa því skapað henni þá helgi í hugum þeirra, er hér búa, að