Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 42

Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 42
376 KIRKJUIUTIÐ sársaukalaust mundi þeim ekki að' sjá hana verða að skran- skemmu, — horfna sem helgidóm. í þriðja lagi sýna gjafir þær, sem ég gat um áðan, hug þeirra, Bergstaðakirkja er þar eiga hlut að máli, betur en ég get túlkað. Læt ég þær því einar um að segja þá sögu. í fjórða lagi er á það að líta, að „hægra er að styðja en reisa“. Þótt sú upphæð, sem til þessa verks hefur gengið, sýnist há — og sé það, — er hún þó trúlega ekki þriðjungur þess fjármagns, sem þurfa mundi af hendi þessarar sóknar til að reisa eina kirkju að nýju fyrir alla sveitina. Það kann að þykja rangt, að minna á það á þessum tímum auðs og ailsnægta á landi voru, að „molar eru líka brauð“. En þó er það staðreynd- Og í fimmta lagi — en um það kann ég að vera einn. — Þótt vel megi sanna stærðfræðilega — eða hagfræðilega, hvort hug- takið sem haft er, — sé rétt að hafa fáar kirkjur og stórar, er fjarri lagi að þessum málum séu gerð full skil með þeirri lausn einni. Málum kirkjunnar, — málefnum kristindómsins í heild. — verður ekki bjargað með ískaldri stærðfræði. Þar kemur

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.