Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 47

Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 47
KIRKJURITIÐ 381 Vonandi verður riti þessu tekið svo vel, að áframhald geti °rðið á útgáfu þess. Hvorki mun norðlenzku prestana skorta til þess efni né rithæfni. Og annað og meira: Endurvakning félags- ins og ritsins vona ég að boði endurreisn biskupsstóls á Hólum. Það er takmark, sem Norðlendingar eiga einhuga að keppa að, og margar líkur benda til, að þeim geti auðnazt að ná á næst- unni. Hermann Pálsson: íslenzk mannanöfn. — Heimskringla 1960. Snotur og handhæg bók, sem eflaust kemur að miklum not- uni. „Lesendur og njótendur þessarar bókar bið ég minnast þess“, segir höf., „að fyrir mér vakir einkum handhæg skrá yfir íslenzk nöfn. Vænti ég þess, að bókin megi verða til þess, að betur verði vandað til skírnarnafna eftir útkomu hennar en aður, að útlendum nöfnum og nafnleysum fari fækkandi og þjóðlegum íslenzkum nöfnum fjölgandi að sama skapi.“ Þá birtir hann Lög um mannanöfn (nr. 54, 27. júní 1925) og Segir síðan: >,Lög þessi hafa, eins og kunnugt er, verið þverbrotin svo oft, aÖ undrum sætir. Fjölmargir foreldrar hafa valið börnum sín- Urn nöfn, sem eru útlend og röng að lögum íslenzkrar tungu. ^argir hafa tekið upp ættarnöfn, og velja sumir þá leið, að þeir gefa börnum sínum ,,ættarnöfn“ að skírnarheitum, þótt slík n°fn hljóti að brjóta í bága við nafngiftasiði og lög. Margir Ptestar hafa gegnt eftirlitsskyldu sinni helzt til slælega, þótt aðrir hafi réttilega neitað að skíra börn ólöglegum nöfnum. ^tjórnarráðið og heimspekideild háskólans hafa eftir því, sem eS bezt veit, einnig brugðizt lagalegri skyldu sinni, því að skrá mannanöfn, sem bönnuð skulu vera, mun enn vera ókom- ln út. Vanræksla stjórnarráðsins og heimspekideildar háskól- ans er í rauninni óskiljanleg, því að íslenzk alþýða hefur ávallt naft mikinn áhuga á nöfnum og nafngiftum. Og vitanlega hef- Ur þessi vanræksla gert prestunum mun örðugra fyrir um eftir- Ú á nafngiftum.“ Letta er laukrétt. En samt er mín reynsla sú, að minna beri nu á því en í byrjun þessarar aldar og fyrr, að foreldrar kjósi aÖ gefa bömum sínum erlend heiti eða gælunöfn, hvað þá 'aunveruieg ónefni. Hitt er aftur á móti eftirtektarvert, að ytn>s forn og góð nöfn, sem kalla má að legið hafi í dái, jafn-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.