Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 49
Erlcndar fréttir,
Bygging mosku í Kaupmannaliöfn. Múhameðstúarmenn 1 Dan-
mörku eru nú um 20 talsins. En þótt þeir séu ekki fleiri, ætla þeir
að ráðast í það að byggja veglega mosku með hvolfþaki og tveimur
turnum.
Kaþólskir bjóSa lúterskum kirkju til guOsþjónustuhalds. Sá at-
hyglisverði atburður gerðist nýlega í Danmörku, að kaþólskur prest-
ur bauð lúterskum full not af kirkju sinni og hafði til þess sam-
Þykki biskups síns.
GuOfrœÖindm stytt í Noregi. Undanfarið hefur guðfræðinám þar
staðið yfir í 7 ár. En nú er það vilji bæði guðfræðikennara og guð-
íræðistúdenta að stytta það um tvö ár.
Norska Bibliufélagiö hefur ákveðið að gefa út nýja þýðingu á
Nýja testamentinu, ætlaða ungu fólki. Útgáfurnar verða tvær, önn-
ur með stuttum skýringum neðanmáls.
Gjafir Svía til bágstaddra þjóöa á þessu ári nema alls nær 21
uúlljón sænskra króna.
Trevor Huddlestone, hinn víðkunni enski prestur, sem manna
skeleggast hefur barizt gegn kynþáttaaðgreiningunni í Suður-Afríku,
úefur nýlega verið kjörinn biskup í Masasi í Austur-Afríku.
Kyrsti vinnupresturinn hefur tekið til starfa í Englandi. Heitir
Anthony Wiiliamsson og er 26 ára. Aðalstarf hans er bilsmíði, og
f®r hann engin föst laun fyrir prestsstörfin. Hann er og virkur þátt-
takandi í stéttarfélagi sínu — og nýtur mikils trausts vinnufélag-
anna.
Tnnlciular É'réllir.
Leiörétting. I fréttunum i síðasta hefti átti vitanlega að standa,
að séra Bjarni Jónsson vígslubiskup hefði nýlega átt 50 ára vígslu-
afmœli (ekki afmæli).
Aöalfundur Prestafélags Austurlands var haldinn laugardaginn
sept. s. 1. í barnaskólanum á Egilsstöðum. Formaður félagsins,
®era Erlendur Sigmundsson, setti fundinn að afloknum morgun-
®num. Gat hann þess, að af félagssvæðinu hefðu flutzt þeir séra