Kirkjuritið - 01.10.1962, Síða 6
Séra Árelíus Níelsson:
Þing Alkirkjmáðsins
í Nýju Delhi 1961
Það fer ekki á milli mála, að Alkirkjulireyfingin eða eins
og hún er venjulega nefnd Ekumeniska stefnan, er eitt merk-
asta félagslegt fyrirbæri nútímans til eflingar friði og sam-
starfi þjóða og kynþátta.
Hún er hliðstæð Sameinuðu þjóðunum. Þeirra viðleitni er
meira á sviði stjómmála. Ekumeniska hreyfingin leitast sér-
staklega við að skapa skilning og samstarf á sviði trúmála og
hugsjóna, sýna þar fram á einingu í allri fjölbreytni, skoðana,
játninga og kirkjudeilda.
Alkirkjuhreyfingin liélt þriðja aðalþing sitt í Nýju Dellii
(New Delhi) í Indlandi í fyrra, árið 1961.
Það var að ýmsu leyti mjög merkileg samkoma og verður
lengi minnzt í málum kirkju og friðsamlegs samstarfs í ver-
öhlinni.
Norskur biskup og guðfræðidoktor hefur skrifað nm þessa
samkomu langa og merka ritgerð í tímaritið „For Kirke og
Kultur“. Hann lieitir Káre Stöylen og á heima í Kristiansand
í Noregi.
Það sem hér fer á eftir er að mestu miðað við frásögn hans
af þinginu, því vel þykir hlýða að lesendur Kirkjuritsins fylg-
ist með því, sem þar liefur verið efst á baugi.
Það sem fyrst vekur atliygli er, að á þinginu var myndað
samband tveggja kristilegra félagsheilda: Alkirkjuráðsins og
Alþjóðlega kristniboðsráðsins. Starfar hið síðarnefnda nú sem
deild í Alkirkjuhreyfingnnni og nefnist á ensku: „Commission
for World Mission and Evangelism“. En þessar hreyfingar eru
skyldar að eðli og uppruna frá byrjun. Og eru raunverulega
báðar komnar fram á kirkjufundi, sem lialdinn var í Edin-
horg árið 1910.