Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 38

Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 38
KtRKJURITIÐ 372 og fjórðungsráðgjafar í æskulýðsmálum. Ræddi hann um nauð- syn þess að standa skipulega að verki í þessum málum sem öðrum, og að nauðsyn væri að hvetja sem flesta og örfa til að leggja liönd á plóginn. Lauk hann máli sínu með því að benda á ýmiss atriði, sem gætu orðið verkefni fjórðungsráðgjafanna á hverjum stað. Því næst var skipt niður í smærri liópa eftir landssvæðum og rætt um þau mál, er sérstaklega gætu átt við þá staði, t. d. fermingarmótin, sumarbúðir, héraðsskóla, samtök æskulýðs- félaga innan prestakalla og milli fleiri prestakalla, heimsóknir æskumanna o. fl. Því næst komu allir lióparnir saman á ný og rætt var um skipulagsmál starfsins. Að loknum frjálsum umræðum sleit form. æskulýðsnefndar síðan mótinu og þakkaði ötult starf og áhugasamt, sem hann kvaðst vona, að væri boðberi nýs dags og nýrra og markvissra átaka á þessu sviði. Kvöldinu var síðan varið í að hlýða á kynningu frú Laufey Ólson á starfi djáknasystra, og auk þess voru sýndar kyrrmynd- ir frá Vestmannsvatni. Séra Árni Sigurðsson annaðist síðan helgistund. Rætt var um það, að slík mót gætu orðið árlegur atburður, og voru menn á einu máli um það, að að því bæri að stefna. SKRÝTLUR Gandolin, ítulskur útgefandi og ritstjóri dugblaðsins II Messaggero fékk einu sinni næsta lélega grein frá einum vini sínum og flokksbróður. — „Settu kommurnar þar sem við á, og dembdu þessu svo í blaðið“, skrifaði hann. Gandolin svaraði honum: „Við gerðunt eins og þú baðst. En sendu okkur bara kommurnar framvegis, svo skulum við skrifa greinarnar“. Margir menn, sem töldu sig minna á Mark Tivain, sendu honum mynd af sér. Hann greip því til þess ráðs að láta prenta eftirfarandi bréf í allstór- um stíl: „Kæri herra! Eg þakku yður inuilcga fyrir bréfið og inyndinu. Að inínu áliti eruð þér enn líkari niér en allir liinir tvígenglar mínir. Eg get jafn- vel sagt, að þér séuð enn líkari mér en ég sjálfur. Sannast sagna hefur mér mér dottið í hug að nota myudina af yður til að raka inig við liana. Með innilegu þakklæti. —S. Clemens.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.