Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1962, Qupperneq 9

Kirkjuritið - 01.10.1962, Qupperneq 9
KIRKJURITIÐ 343 uðu þjóðunum, kynþáttavandamál Suður-Afríku, Gyðingaof- sóknir, stöðvun tilrauna með kjarnorkuvopn, afvopnun o. fl. En sérstök nefnd lagði fram skýrslur um allt þetta. Og álykt- anir eru lagðar fram, þegar unnt er að finna sameiginlegt álit, sem telja megi grundvöll kristilegrar lífsskoðunar í þessum málum. Fátt vakti meiri og almennari áliuga á þinginu í Nýju Dellii en umræðurnar um ástandið í Suður-Afríku og veiting friðar- verðlauna Nobels til Suður-Afríkumannsins Luthuli er vafa- laust orðin fyrir áhrif Alkirkjuþinganna bæði í Nýju Dellii og þó ekki síðui þings ráðsins í Cottesloe í Jóhannesarborg árið 1960. Þingið í Nýju Dellii tók einnig mikilsverðar ákvarðanir um alþjóðlega aðstoð við flóttafólk. Og er sérstök deild starfandi að þeim málum í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar, og hef- ur hún meðal annars safnað lmndruðum milljóna króna til hjálpar fólki, þar sem styrjaldir, hungur, landflótti og nátt- úruhamfarir kreppa að kjörum þess. Þau orð sem telja mátti yfirskrift þingsins voru: „Jesús Kristur, ljós heimsins“, og þetta málefni var rætt í ineginatriðum sem vitnisburður, þjónusta, eining. Boðun orðsins er og verður aðalatriði, en hún verður álirifa- lítil án fórnfúsrar þjónustu til farsældar þeirri kynslóð, sem ]iekkir hungur, neyð og mannlega eymd á átakanlegri liátt en nokkur önnur kynslóð í sögu mannkyns. En hér á íslandi liefur alltof lítið verið gjört til að opna augu og hjörtu fólksins fyrir öllu því, sem kristileg kirkja þarf að gjöra á þessu sviði til að vera hlutverki sínu trú og meistara sínum sönn sem hinu eina ljósi heimsins. Við getum ekki verið kristin, ef við látum neyð annarra afskiptalausa eða göngum hlind fram hjá vandamálum og eymd þrautpíndra einstaklinga og þjóða. Kynnumst því starfi Alkirkjuráðsins eftir fyllstu getu. Ef vér eigum að geta fagnað hver öðrum á himnum, verðum vér að geta liðið hvern annan á jörðunni. — Olfert Ricard. Skyldan við |)á, sem lifa er mikilvægari en nokkur ástúðarvottur í garð liinna dánu. — Robert Louis Stevensen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.