Kirkjuritið - 01.10.1962, Side 11
KIRKJURITIÐ
345
notið margra yndisstunda í kirkju Akureyrar, ])að skal játað
og þakkað, og síðast nú við hátíðarmessu á 100 ára afmæli
Akureyrarkaupstaðar. Sú helgistund er ein þeirra stunda, sem
cigi er unt að gleyma og lirærir við innstu hjartataugum. Hið
yndislega guðsliús var þétt setið af safnaðarfólki. Það gat ekki
farið fram hjá nokkrum þeim, er í kirkjunni sat, að fólkið var
komið á merkum tímamótum Akureyrarbæjar, til að færa
Huði sínum þökk fyrir vernd lians yfir bænum í 100 ár, og
til að biðja lionum blessunar um ókomnar aklir. Hátíðleik-
inn áður en guðsþjónustan hófst lá í loftinu, og leitaði inn.
Þessi hátíðleiki og samstillti hugur kirkjugesta var messugjörð
út af fyrir sig. En svo klufu tónar frá hinu dásamlega hljóð-
færi kirkjunnar loftið, þá var líkt sem kirkjan þendist út á
alla vegu, víkkaði, hækkaði, og lielgur andi fyllti rúmið og
áhrifin frá honum læsti sig um hverja taug, vermandi og bless-
andi. Það leyndi sér ekki á svip kirkjugesta, að ])essi tilfinn-
'ng greip um sig og varði við, en náði þó hámarki sínu í
messulok, er allir risu úr sætum og sungu þjóðsönginn. Á
þeirri stundu hafa áreiðanlega margar bænir lyft sér í liæðir
nm, að blessun Guðs mætti halda vörð um Akureyrarbæ, höf-
uðstað Norðurlands, eyfirzkar byggðir, landið allt og íslenzka
þjóð. Megi ]) ær bænir ná í hæstu hæðir.
Hátíðahald Akureyringa á aldarafmæli bæjarins fór allt
fram með liinni mestu prýði og Akureyringum til verðugs
sóma. Aðalræða hátíðahaldanna, ræða Davíðs Stefánssonar,
skálds, var í senn stórbrotin og full andagiflar og í fullu sam-
ræmi við guðsþjónustu dagsins. Honum gleymdist ekki kirkjan
°g hennar þáttur í lífi og velferð bæjarins. Hinir tveir turnar
Akureyrarkirkju sagði bann, „skyldu vera bæjarbúum sýni-
legt tákn lífs og dauða“. Þetta var spaklega mælt, og holl
tuninning, um að líf manna og velferð er í hendi þess Guðs er
lífið skóp, án náðar hans og varðveizlu verða verk vor smá
°g vafasöm til giftu.
Ég vil að lokum færa Akureyringum mína hjartfólgnustu
kveðju á 100 ára afmæli bæjarins, með þeirri ósk bæjarbúum
til handa, að öll þeirra störf í framtíð mótist af sama hugar-
fari og staðið hefur að haki byggingu helgidóms þeirra, kirkj-
unni. Mun þá vart þurfa að efa bjarta framtíð og blessunar-
n"ka. Megi Akureyri blómgast og blessast.