Kirkjuritið - 01.10.1962, Page 16
KIRKJURITIÐ
350
Þetta er gleðilegur og mikilsverður árangur. Og vonandi fer
þessu ekki hrakandi með síbatnandi aðbúnaði. Samlíf drengj-
anna við náttúruna á vafalaust mikinn þátt í þessu, auk þess
live vel hefur tekizt til með starfsfólkið.
Telpnalieimili -— uppeldisstöð telpna, sem hrotið hafa af
sér stjórn foreldranna og villst á vegi — verður einnig að rísa.
Það mál hefur lengi verið á döfinni. Margir hafa rætt um
það og ritað, Alþingi veitt nokkurn fjárstyrk til þess, en veru-
legur skriður er ekki enn kominn á neinar framkvæmdir. —
Merkiskona ræddi nýlega við mig og liélt því fram, að þetta
mál kæmist ekki fram, nema prestastéttin tæki það í sínar
hendur. Og bezt væri því borgið undir yfirstjórn hiskups. Hún
harmaði, að þjóðkirkjan hefði ekki ráðist í að stofna til þess
að Löngumýri, í stað þess að reka þar áfram einn liúsmæðra-
skólann, að vísu með kristilegu ívafi.
Ég skal ekkert um það segja. Hitt veit ég að biskupinn lief-
ur ríkan áliuga á því, að stofnað verði umrætt uppeldisheim-
ili og eflaust vilja allir prestar að því stuðla. Ég ætla að stjórn-
arvöldin hafi h'ka skilning á því, live hér er um mikla þörf
að ræða. En þeim mun finnast þau liafa í mörg horn að líta.
Þetta vandamál verður varla leyst á næstunni, nema með þvi
að nokkrir áhugamenn taki höndum saman og hrindi því frani,
líkt og S.l.B.S. og fleiri þess liáttar samtök, hafa unnið að
geysilegum umbótum.
Enn skortir nógu einbeitla og fórnfúsa forystumenn. Og a
meðan verða margir úti, sem unnt væri að hjarga.
/ deiglunni
Ný atvinnugrein er risin á legg og færist í aukana: Æ flein
sveitalieimilum er nú árlega snúið upp í sumardvalarstaði
fyrir börn úr þéttbýlinu. Þetta gerist venjulega með þeim hætti
að hjón, sem tekið liafa börn til sumardvalar fyrir þrábeiðm
ættingja og kunningja, færa út kvíarnar. Bæði sakir ásóknar
utan að og vegna skilnings á því, að hagkvæmara er að liafa
hörnin heldur fleiri en færri, úr því að svo er koinið, að þaU
eru ekki tekin til létta lieldur umönnunar.
Hér er mikið nauðsynjaverk af höndum leyst. Eiginleg dval-
arheimili barna á vegum félaga og bæja eru alltof fá, en æ