Kirkjuritið - 01.10.1962, Síða 46
K I RKJURITIÐ
380
esdóttir, kennari, stýriVi matreið'slu endurgjaldslaust allan tímann og naut
við það aðstoðar stúlknanna í flokknuin til skiptis. Eigum við þessum
aðiluni sem og mörgum öðrum lieima fyrir, sem styrktu flokkinn með
matgjöfuin, inikið að þakka. Má í því samhaudi nefna, að nokkrir hænd-
ur í nágrenni Grafarness gáfu alla mjólk, sem með þurfti. Þátttakendur
í vinnubúðunum grciddu sjálfir tæpl. 10 þús. krónur upp í fæðiskostn-
aðinn, en framlag safnaðarins til vinnubúðanna, um 8. þús. kr., var svo
að segja allt gjafir einstakra safnaðarmanna og verzlana í matvörum og
vinnu. Þá her þess og að geta og þakka, að æskulýðsnefnd þjóðkirkjunn-
ar greiddi ferðakostnað vinnuflokksins milli Reykjavíkur og Grafarness.
Veður var framúrskarandi gott allan dvalartíma flokksins hér. Einna
sizl var veðrið, þegar farin var hringferð uin Snæfellsness, en móttök-
urnar hjá prófastshjónunum í Ólafsvík, Lóu Kristjánsdóttur, veitinga-
konu á Búðum, og sóknarprestinum á Staðarstað liættu það upp.
Þátttakendur í vinnubúðunum reyndu að kynnast söfnuðinuin sem inest.
Þeir tóku þátt í guðsþjónustuni safnaðarins og efndu til samverustunda
með hörnum, unglingum og fullorðnum. Voru samkomur þessar vel sótt-
ar og þóttu takast vel. Kóramót Snæfellsnessprófastsdæmis var lialdið í
Grafarnesi fyrsta sunnudaginn, sem flokkurinn dvaldist þar. Var það eftir-
minnilegur viðhurður fyrir alla þátttakendur í vinnubúðunum. Annan
sunnudaginn var messa og altarisganga að Setborgi og þann þriðja úti-
guðsþjónusta lijá Grafarnesskirkju.
En mikilvægast í lífi hverra vinnuhúða er þó það, að hinn innri eldur
logi á daglegum guðræknisstundum og hihlíulestruin. Ætti það að vera
kappsmál kirkju vorri að styðja vinnuhúðastarfið framvegis sem hingað
til, því að það getur liaft ómetanlega þýðingu fyrir unga fólkið, sem þar
safnast sanian til vinnu og hæna. Flokksstjórar voru Ingólfur Guðmunds-
son, guðfræðingur, og Nico van Waveren, kennari, frá Hollandi. Auk Ing-
ólfs og sóknarprestsins á Setbergi voru tveir íslenzkir þátttakendur, Guð-
rún Agnarsdóttir, stud. med., og Lárus Guðmundsson, stud. theol. Aðrir
þátttakendur voru frá Sviss, Þýzkalandi, Danmörku, Svíþjóð og Banda-
ríkjunum. Dr. Þórir Þórðarson, prófessor og Anita Dielil, framkvæmda-
stjóri vinnubúðastarfsins í Genf, komu í heimsókn og fluttu erindi.
Sunnudaginn 9. sept. var reisugildi kirkjunnar haldið í Hótel Felli ■
Grafaruesi að lokinni guðsþjónustu í samkomuhúsinu þar. Töluðu þar
auk sóknarprestsins, Guðríður Sigurðardóttir, símstjóri og Halldór Finns-
son, oddviti, og fögnuðu þeim áfanga, sem nú var náð. Var byggingar-
meistara kirkjunnar, Guðbjarti Jónssyni úr Reykjavík, sérstaklega þakk-
að farsælt og gott starf, en hann hefur stjórnað verkinu frá upphafi. —
Þakkaði Guðbjartur að lokuiu fyrir sig og sína menn, sagði, að miklum
áfanga væri náð, en mikið væri eftir. Hvatti hann menn til dáða.
Á þessu ári liafa Grafarnesskirkju borizt meira en 70 þús. krónur í fjár-
framlögum og gjafavinnu auk framlags vinnuflokksins, sem varlega er
áætlað 35 þús. kr. Stærsla peningagjöfin, sem kirkjunni hefur horizt a
þessu ári, eru 20 þús. krónur frá hjónunum Halldórn Jóhannsdóttur og
Lárusi Jónssyni, Grafarnesi, til ininningar um foreldra þeirra heggja, Höllu
Jónatansdóttur og Jóhann Dagsson, Kverná, og Helgu Sigurðardóttur og