Kirkjuritið - 01.10.1962, Qupperneq 48
KIRKJURITIÐ
382
A aldarafmœli séra Jóns Steingrímssonar í Gaulverjabæ, 18. júlí s. 1.
var lialdin minningarguðsþjónusta í Gaulverjabæjarkirkju. Yið það tæki-
færi afhenti sonur séra Jóns, Steingrímur, fyrrverandi rafmagnsstjóri í
Reykjavík, fjörutíu þúsund krónur að gjöf til minningar um foreldra
sína, séra Jón og konu lians frú Sigríði Jónsdóttur. Skal gjöf þessari
varið til að rafhita kirkjuna. Uét Steingrímur og sóknarnefndinni aðstoð
sinni við framkvæmd verksins. Sóknarpresturinn, séra Magnús Guðjóns-
son, þakkaði hina veglegu gjöf og flutti minningarræðu um séra Jón
Steingrímsson, sem var mjög ástsæll og hvatamaður ýmissa umhóla í
prestakalli sínu, þótl hann létizt eftir aðeins þriggja ára prestsskap, 29
ára að aldri.
20 me'ölimir úr Æskulýösfélagi Olaus Petri kirkjunnar í Örebro í Sví-
þjóð komu hiugað til lands um miðjan júlímánuð og dvöldust hér um
nokkurt skeið í hoði þjóðkirkjunnar. Fargjaldið greiddu samt þátttak-
endur sjálfir. Ferðuðust þeir all víða um landið, liéldu og samkomur.
Kváðust mundu stuðla að því að jafnstór flokkur íslendinga gæti dvalist
í Svíþjóð, helzt næsta sumar.
Séra Stefán Eggertsson á Þingeyri er nýkominn úr fjögurra mánaða
kynnisferð í Bandaríkjunum. Þáði liann boð að kynna sér þar æskulýðs-
mál.
Æskidýösfulltrúi kirkjunnar, séra Ölafur Skúlason, dvaldi vestur í Am-
eríku mánaðartíma í surnar. Sólti hann þing Kristilegra Alþjóða Ung-
mennaskipla (ICYE), en íslenzka Þjóðkirkjan er aðili að þeim samtök-
um. Var rætt um framtíðarverkefni þessara samtaka og litið yfir farinn
veg ,rælt mn lagfæringar, þar sem þeirra var þörf, og vandlega atliuguð
reynslan, scm fengin var uni samskipti unginennanna við skóla, kirkju og
heimili. Síðan dvaldi hann að Drew liáskólanum í New Jersey liæði nieð
íslenzkum ungmennunum níu, sem voru þar í fjóra daga, áður en þau
héldu aftur lieim til Islands, og sömuleiðis með 15 manna hópnuni, sem
var að koma vestur lil ársdvalar.
Kristniboösfélög og flokkar eru nú 8 í Reykjavík auk nokkurra út um
land. Safnast þeim mikið fé árlega, enda kostnaður þcirra mikill vegna
kristnihoðsstöðvarinnar í Konso.
Miövikudaginn, 26. sept. s. I. var fjölsótt samkoma í Safnaðarheimih
Langholtskirkju. Ilöfðu ungmennin ,sem tóku þátt í nemendaskiptunum
við Bandaríkin, þar hoð inni fyrir foreldra sína, svo og aðstandendur
þeirra, sem nú dvelja vestra á vegum kirkjunnar. Var þarna inilli A) og
80 manns sainankominn. Unga fólkið sagði frá reynslu sinni vestra, ræddi
uin ýmislegt, sem því fannst til fyrirmyndar í skólum, kirkju og víðar,
en drap einnig á það, sem því fannst betra hér en þar. Þáðu allir góðar
veitingar, er Kvenfélag Langholtssafnaðar har fram, síðan sýndi æskulýðs-
fulltrúi kyrrmyndir, og samverunni, sem var í alla staði nijög vel heppu-
uð, lauk með helgistund í kirkju safnaðarins. Fluttu ungmennin þar sjálf
hæn og hugleiðingu og lásu úr Biblíunni.