Jörð - 01.08.1942, Blaðsíða 11
með hendi glæpa og synda. —
í vágný hatursvinda
á vonzkan undirtökin,
því svigna og brotna hökin
sem flök, er
hrannir hrinda.
Þótt dreymi stóra drauma,
er foldin storms og strauma
— sem stríðið geysar yfir,
svo lamast flest, sem lifir, ——
og herst í hnatta eyði
við eigin skapa reiði,----
á alheims mælikvarða,
ein vesöl skyndi-varða —
ein arða’ á
himna-heiði.
Og á þessari örðu,
Guðs himinhelgri jörðu,
býr hópur trylltra glanna:
tvö þúsund milljón manna. —
Sem krakkar milli vita
þeir berjast um hvern bita
og blóð hver annars teyga. —
Þeim grimmdarskot ei geiga,
og mega
vamm sitt vita.
Allt snýst um málminn rauða,
menn snúa lífi í dauða
og snilli heilans beita
að bölsins marki — og breyta
svo allri heimsins iðju
í eina vopnasmiðju,
því allt í rúst skal leggja,
og fram hver annan eggja
til dreggja-
hinnstu hryðju.
Hjá morðvopnanna hirði
er mannslíf einskisvirði, —
en mannsins afl fær gildi,
er há skal mikla hildi