Jörð - 01.08.1942, Side 18
þig stæðu allt í kring um, —
nú slá þig herir hring um
og þinga’ um
kjör þín kaldir.
Þér væri betri gröfin,
mín ættjörð — Ægisgjöfin —
en ógnum þeim að mæta,
er systurþjóðir sæta
af völdum drápsvélanna
á dögum hörmunganna,
er deyr hver vonarneisti,
og hnígur æskuhreysti,
sem treysti
menning manna.
Hvort munt þú, land mitt, hljóta
að feigðarósnum fljóta
sem flak á tímans straumi
með dags þíns hinzta draumi
og hverfa’ í þjóðahafið
með — hvíta jökultrafið,
með heita fjallabálið,
með fágað frelsisstálið,
með málið
vorþrám vafið?
NEI — fornir eðlisþættir
og íslands verndarvættir
á verði’ um frelsið standa
og heill — til beggja handa.
Sjá, enn mun norræn gifta
þeim andans kyndli lyfta,
sem ægiljóma sleginn
skal vísa öðrum veginn
og — megin-
sköpum skipta.
HÖFUNDUR
VÆÐIS þessa, GuSmundur Éýjólfsson Geirdal, hefur gefið úl
1V tvær kvæðabækur, Milli þátta, árið 1934 og Stuðlai'öll, ár'ið
1939. Auk þess á hann ævintýrasaln í liandriti.
144
JÖKD