Syrpa - 01.06.1914, Blaðsíða 8

Syrpa - 01.06.1914, Blaðsíða 8
198 SYRPA ,,En ekki fer eg að segja neinum frá innihaldi bréfsins, þó eg þýöi það á ensku“, sagði eg. ,,Eg er ekkert hræddur um það“, sagði Arnór; ,,en hitt veit eg, að frú Colthart lætur ýmsa kunningja sína Iesa bréfið, þegar það er komið á ensku. Til þess er leikurinu gjörð- ur. Eg ætla samt að sporna við því í lengstu lög, að bréfið veröi þýtt á ensku“. ,,En frú Colthart kemur á morg- un“, sagði eg. ,,Látum hana koma. Uún fær ekki bréfið í sínar hendur, fyr en eg er búinn að tala við konuna, sem segist vera systir Madeleine Vanda. Og þú ætlar að fylgja mér til henn- ar, þegar eg er orðinn frískur aftur? En annað kvöld skal eg Iofa þér að lesa bréfið og eins dagbók mína. Þá skilurðu, hvernig í öllu liggur; og þá vona eg að þú Iáir mér það ekki þó eg vilji halda þessu leyndu — jafnvel fvrir nánustu frændum mínum og vinum“. Eg hét honum því, að halda þessu leyndu og veita honum alt það lið, sem mér væri unt, og þakkaði hon- um fyrir að bera svona mikið traust til mín. Og svo töluðum við ekki meira um það í það sinn. En eg óskaði af öllu hjarta, að næsti sól- arhringur yrði fijótur að líða.---- Daginn eftir kom frú Colthart og talaði lengi við Arnór, en hversu orð fóru mcð þeirn, veit eg ekki, því eg var ekki heima, þegar hún kom. Það eitt er víst að hún fékk ekki bréfið. Og það kom aldrei til þess að eg þýddi það á ensku. Þegar eg kom heim um kveldið mætti eg gamla O’Brian ístiganum. Hann var, eins og vanalega, kími- leitur og glaðlegur á svipinn, en þó sá eg strax að honum bjó eitthvað mikið í brjósti. ,,Eg heíi .nokkuð að segja þér, sonur minn“, sagði hann. Og mér virtist hann verða sem allra snöggv- ast, ofurlítið alvarlegur. Og eg hélt að hann ætlaði að fara að segja mér eitthvað um Arnór. ,,'Er Arnór nú veikari en hann var í morgun ?“ sagði eg. ,,Nei, nei“, sagði O’Brian og brosti, ,,það var ekki honum við- víkjandi, sem eg ætlaði að tala við þig. — Hann Arnór okkar er úr allri hættu, sonur minn elskulegur. Og hamingjunni sé lof fyrir það ! Það kom líka kona hingað í dag til að finna hann. Og það veit trúa mín, að fyrirferðar-meiri né föngu- legri konu hefi eg aklrei áugum litið. Ef hún er ekki komin íbeinan kven- legg frá dóttur hans Jóns FalstafT hiris feita, þá heiti eg ekki Patrekur O’Brian. Eg mætti henni í morgun hérna í þessum stiga, sem viðstund- um nú í. Og með henni var dálítill drenghnokki. Eg lyfli hattinum, eins og írsku prúðmenni sæmir, og hún tók kveðju minni kurteislega. ,Eg er frú Colíat', segir hún. ,En eg er herra Patrekur O’Brian1, segi e8')- >Og ert þá írskur?* segir hún. ,Eg hefi tekið þann heiður að erfð- um', segi eg, ,og stæri eg mig þó ekkert af því. En er þetta sonur þinn, sem með þér er, frú Coldhcart? Fallegur drengur þetta !‘ ,Já það er sonur minn; og hann er enskur í húð og hár, sem betur fer‘, segir hún. ,Eg samgleðst þér af öllu hjarta, frú Coldhcart!‘ segi eg. ,Eg heiti ekki Coldat, heldur Coltat', segir hún og var dálítið önug, ,Eg bið afsökunar, frú Colthearl', segi eg; ,en hvað er drengutinn þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.